bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Deuteronomy 26
Deuteronomy 26
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 25
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 27 →
1
Þegar þú kemur inn í landið sem Drottinn, Guð þinn, er í þann veginn að fá þér að erfðahlut og þú hefur tekið það til eignar og ert sestur þar að,
2
skaltu taka nokkuð af frumgróða allra ávaxta jarðar, sem þú flytur heim af landi þínu og Drottinn, Guð þinn, gefur þér, og láta í körfu. Síðan skaltu fara til þess staðar sem Drottinn, Guð þinn, velur til þess að láta nafn sitt búa þar.
3
Þú skalt ganga fyrir prestinn sem þá gegnir embætti og segja við hann: „Nú játa ég fyrir Drottni, Guði þínum, að ég er kominn inn í landið sem Drottinn hét forfeðrum okkar að gefa okkur.“
4
Þegar presturinn tekur við körfunni úr hendi þér og setur hana niður frammi fyrir altari Drottins, Guðs þíns,
5
skaltu taka til máls og játa frammi fyrir Drottni, Guði þínum: „Faðir minn var umreikandi Aramei og hann fór suður til Egyptalands fáliðaður og hlaut þar hæli sem aðkomumaður og varð þar að mikilli, öflugri og fjölmennri þjóð.
6
En Egyptar léku okkur grátt, kúguðu okkur og lögðu á okkur þunga þrælavinnu.
7
Þá hrópuðum við til Drottins, Guðs feðra okkar, og Drottinn heyrði hróp okkar og sá eymd okkar, þraut og ánauð.
8
Og Drottinn leiddi okkur út úr Egyptalandi með sterkri hendi og útréttum armi og með mikilli skelfingu, táknum og stórmerkjum.
9
Hann flutti okkur á þennan stað og gaf okkur þetta land, land sem flýtur í mjólk og hunangi.
10
Nú færi ég þér frumgróðann af ávexti landsins sem þú hefur gefið mér, Drottinn.“ Þegar þú hefur sett körfuna niður frammi fyrir Drottni, Guði þínum, skaltu falla fram fyrir Drottin, Guð þinn.
11
Síðan skaltu gleðjast yfir öllum þeim gæðum sem Drottinn, Guð þinn, hefur gefið þér og fjölskyldu þinni, bæði þú, Levítarnir og aðkomumennirnir sem búa hjá þér.
12
Þegar þú hefur greitt tíund af allri uppskeru þinni á þriðja árinu, tíundarárinu, og hefur fengið tíundina Levítanum, aðkomumanninum, munaðarleysingjanum og ekkjunni, svo að þau geti etið sig mett í borg þinni,
13
skaltu segja frammi fyrir Drottni, Guði þínum: „Ég hef fjarlægt hin helguðu afgjöld úr húsi mínu og fengið þau Levítanum, aðkomumanninum, munaðarleysingjanum og ekkjunni, nákvæmlega eftir því boði sem þú hefur sett mér. Ég hef hvorki brotið gegn boðum þínum né gleymt neinu þeirra.
14
Ég hef ekki etið neitt af tíundinni þegar ég hef verið í sorg. Ég hef ekki fjarlægt neitt af henni þegar ég hef verið óhreinn og ekki gefið dauðum manni neitt af henni. Ég hef hlýtt Drottni, Guði mínum, ég hef fylgt öllu sem þú hefur boðið mér.
15
Lít niður úr þínum heilaga bústað, frá himninum, og blessaðu lýð þinn, Ísrael, og landið sem þú hefur gefið okkur eins og þú hést feðrum okkar, land sem flýtur í mjólk og hunangi.“
16
Í dag býður Drottinn, Guð þinn, þér að halda þessi lög og ákvæði. Þú skalt halda þau og framfylgja þeim af heilum huga og allri sálu þinni.
17
Þú hefur í dag lýst yfir því að Drottinn sé Guð þinn og að þú viljir ganga á hans vegum, að þú viljir halda lög hans, boð og ákvæði og hlýða fyrirmælum hans.
18
Og Drottinn hefur í dag lýst yfir því að þú sért hans eignarlýður, eins og hann hét þér, og að þú eigir að halda öll boð hans.
19
Hann mun hefja þig yfir allar þjóðir, sem hann hefur skapað, til lofgjörðar, frægðar og dýrðar, og þú skalt verða lýður, helgaður Drottni, Guði þínum, eins og hann hefur heitið.
← Chapter 25
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 27 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34