bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Psalms 119
Psalms 119
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 118
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 67
Chapter 68
Chapter 69
Chapter 70
Chapter 71
Chapter 72
Chapter 73
Chapter 74
Chapter 75
Chapter 76
Chapter 77
Chapter 78
Chapter 79
Chapter 80
Chapter 81
Chapter 82
Chapter 83
Chapter 84
Chapter 85
Chapter 86
Chapter 87
Chapter 88
Chapter 89
Chapter 90
Chapter 91
Chapter 92
Chapter 93
Chapter 94
Chapter 95
Chapter 96
Chapter 97
Chapter 98
Chapter 99
Chapter 100
Chapter 101
Chapter 102
Chapter 103
Chapter 104
Chapter 105
Chapter 106
Chapter 107
Chapter 108
Chapter 109
Chapter 110
Chapter 111
Chapter 112
Chapter 113
Chapter 114
Chapter 115
Chapter 116
Chapter 117
Chapter 118
Chapter 119
Chapter 120
Chapter 121
Chapter 122
Chapter 123
Chapter 124
Chapter 125
Chapter 126
Chapter 127
Chapter 128
Chapter 129
Chapter 130
Chapter 131
Chapter 132
Chapter 133
Chapter 134
Chapter 135
Chapter 136
Chapter 137
Chapter 138
Chapter 139
Chapter 140
Chapter 141
Chapter 142
Chapter 143
Chapter 144
Chapter 145
Chapter 146
Chapter 147
Chapter 148
Chapter 149
Chapter 150
Chapter 120 →
1
Sælir eru grandvarir, þeir er fram ganga í lögmáli Drottins.
2
Sælir eru þeir er halda boð hans og leita hans af öllu hjarta,
3
eigi fremja ranglæti en ganga á vegum hans.
4
Þú hefur gefið skipanir þínar til þess að þeim skuli hlýtt í hvívetna.
5
Ó, að breytni mín mætti vera staðföst svo að ég varðveiti lög þín.
6
Þá verð ég ekki til skammar er ég gef gaum að öllum boðum þínum.
7
Ég skal þakka þér af einlægu hjarta er ég hef numið þín réttlátu ákvæði.
8
Ég vil gæta laga þinna, yfirgef mig aldrei.
9
Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu.
10
Ég leita þín af öllu hjarta, lát mig eigi villast frá boðum þínum.
11
Ég geymi orð þín í hjarta mínu svo að ég syndgi ekki gegn þér.
12
Lofaður sért þú, Drottinn, kenn mér lög þín.
13
Með vörum mínum tel ég upp öll ákvæði munns þíns.
14
Ég gleðst yfir vegi laga þinna eins og yfir gnótt auðæfa.
15
Ég vil íhuga fyrirmæli þín og gefa gaum að vegum þínum.
16
Ég leita unaðar í lögmáli þínu, gleymi eigi orði þínu.
17
Ger vel til þjóns þíns svo að ég lifi og megi halda orð þín.
18
Ljúk upp augum mínum svo að ég sjái dásemdirnar í lögmáli þínu.
19
Ég er gestur á jörðinni, dyl eigi boð þín fyrir mér.
20
Ég tærist sífellt af þrá eftir ákvæðum laga þinna.
21
Þú hefur ógnað hrokafullum, þeim bölvuðu sem víkja frá boðum þínum.
22
Léttu af mér háðung og skömm því að ég hef haldið fyrirmæli þín.
23
Þótt höfðingjar sitji og taki saman ráð sín gegn mér íhugar þjónn þinn lög þín.
24
Já, fyrirmæli þín eru unun mín, boð þín ráðgjafar mínir.
25
Sál mín loðir við duftið, lát mig lífi halda eftir orði þínu.
26
Ég sagði þér frá breytni minni og þú svaraðir mér, kenn mér lög þín.
27
Lát mig skilja veg fyrirmæla þinna, að ég megi íhuga dásemdir þínar.
28
Sál mín tárast af trega, reis mig upp eins og þú hefur heitið.
29
Lát veg lyginnar vera fjarri mér og kenn mér af gæsku þinni.
30
Ég hef valið veg sannleikans og hef ákvæði þín fyrir augum.
31
Ég held fast við fyrirmæli þín, Drottinn, lát mig eigi verða til skammar.
32
Ég vil skunda veg boða þinna því að þú hefur dýpkað skilning minn.
33
Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna og ég mun fylgja honum allt til enda.
34
Veit mér skilning til að halda lögmál þitt og varðveita það af öllu hjarta.
35
Leið mig götu boða þinna, af henni hef ég yndi.
36
Hneig hjarta mitt að fyrirmælum þínum en ekki að illa fengnum gróða.
37
Snú augum mínum frá hégóma, veit mér líf á vegum þínum.
38
Efn heit þitt við þjón þinn svo að ég megi óttast þig.
39
Nem burt háðungina sem ég skelfist því að ákvæði þín eru góð.
40
Sjá, ég þrái fyrirmæli þín, lífga mig með réttlæti þínu.
41
Lát náð þína koma yfir mig, Drottinn, hjálpræði þitt samkvæmt fyrirheiti þínu,
42
svo að ég megi svara þeim sem smána mig því að ég treysti orði þínu.
43
Tak ekki orð sannleikans úr munni mér því að ég setti von mína á dóma þína.
44
Ég vil stöðugt varðveita lögmál þitt um aldur og ævi.
45
Ég mun ganga um víðlendi því að ég leita fyrirmæla þinna.
46
Ég mun vitna um boð þín frammi fyrir konungum og eigi fyrirverða mig.
47
Ég finn unað í boðum þínum, þeim er ég elska.
48
Ég rétti út hendurnar móti boðum þínum, þeim er ég elska, og íhuga lög þín.
49
Minnstu þess orðs við þjón þinn sem þú gafst mér að vona á,
50
það er huggun mín í eymd minni að orð þitt lætur mig lífi halda.
51
Þeir hrokafullu spotta mig ákaflega en ég vík eigi frá lögmáli þínu.
52
Ég minnist boða þinna frá öndverðu, Drottinn, og læt huggast.
53
Ofsareiði við óguðlega grípur mig, við þá er yfirgefa lögmál þitt.
54
Lög þín eru efni ljóða minna í því húsi sem ég gisti.
55
Um nætur minnist ég nafns þíns, Drottinn, því að ég vil halda lög þín.
56
Það hefur hlotnast mér að fylgja fyrirmælum þínum.
57
Drottinn er hlutskipti mitt, ég hef heitið að halda boð þín.
58
Ég ákalla þig af öllu hjarta, vertu mér náðugur eins og þú hefur heitið.
59
Ég hef hugað að vegum mínum og beint skrefum mínum að fyrirmælum þínum.
60
Ég hef flýtt mér og eigi tafið að hlýða boðum þínum.
61
Snörur óguðlegra lykja um mig en ég gleymi ekki lögmáli þínu.
62
Um miðnætti rís ég upp til að þakka þér réttlát ákvæði þín.
63
Ég er vinur allra sem óttast þig og halda fyrirmæli þín.
64
Drottinn, jörðin er full af miskunn þinni, kenn mér lög þín.
65
Þú hefur gert vel til þjóns þíns eftir orði þínu, Drottinn.
66
Veit mér dómgreind og þekkingu því að ég treysti boðum þínum.
67
Áður en ég varð auðmjúkur villtist ég en nú varðveiti ég orð þitt.
68
Þú ert góður og gerir vel, kenn mér lög þín.
69
Hrokafullir spinna upp lygar gegn mér en ég fylgi boðum þínum af öllu hjarta.
70
Hjarta þeirra er sljótt og feitt en ég hef yndi af lögmáli þínu.
71
Það varð mér til góðs að ég var beygður svo að ég gæti lært lög þín.
72
Lögmálið úr munni þínum er mér mætara en þúsundir skildinga úr silfri og gulli.
73
Hendur þínar sköpuðu mig og mótuðu, veit mér skilning til að læra boð þín.
74
Þeir er óttast þig sjá mig og gleðjast því að ég vona á orð þitt.
75
Ég veit, Drottinn, að dómar þínir eru réttlátir, að þú auðmýktir mig í trúfesti þinni.
76
Lát náð þína verða mér til huggunar eins og þú hefur heitið þjóni þínum.
77
Sendu mér miskunn þína, að ég megi lifa, því að lögmál þitt er unun mín.
78
Lát hrokagikkina verða til skammar sem þjaka mig að ósekju en ég íhuga fyrirmæli þín.
79
Þeir snúi sér til mín sem óttast þig og þekkja fyrirmæli þín.
80
Gef mér að fylgja lögum þínum af heilu hjarta svo að ég verði eigi til skammar.
81
Sál mín tærist af þrá eftir hjálp þinni, ég bíð eftir orði þínu,
82
augu mín daprast af þrá eftir orði þínu: Hvenær munt þú hugga mig?
83
Ég er orðinn eins og skorpinn vínbelgur en lögum þínum hef ég eigi gleymt.
84
Hve margir eru dagar þjóns þíns? Hvenær kveður þú upp dóm yfir ofsækjendum mínum?
85
Hrokafullir grófu mér grafir, þeir hlýða ekki lögum þínum.
86
Öll boð þín eru áreiðanleg, menn ofsækja mig með lygum, veit mér lið!
87
Við lá að þeir afmáðu mig af jörðinni en ég vék ekki frá fyrirmælum þínum.
88
Lát mig lífi halda sakir miskunnar þinnar, að ég megi varðveita reglurnar af munni þínum.
89
Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.
90
Frá kyni til kyns varir trúfesti þín, þú hefur grundvallað jörðina og hún stendur.
91
Eftir ákvæðum þínum stendur hún enn í dag því að allt lýtur þér.
92
Væru lög þín ekki gleði mín hefði ég farist í eymd minni.
93
Ég skal aldrei gleyma fyrirmælum þínum því að með þeim hefur þú látið mig lífi halda.
94
Þinn er ég, bjarga mér því að ég leita fyrirmæla þinna.
95
Óguðlegir sitja fyrir mér en ég gef gaum að reglum þínum.
96
Ég hef séð takmörk á allri fullkomnun en boð þín eiga sér engin takmörk.
97
Hve mjög elska ég lögmál þitt, allan daginn íhuga ég það.
98
Boð þín hafa gert mig vitrari en óvini mína því að þau hef ég ætíð hjá mér.
99
Ég er hyggnari en allir kennarar mínir því að ég íhuga reglur þínar.
100
Ég er skynsamari en öldungar því að ég held fyrirmæli þín.
101
Ég forða fæti mínum frá hverjum vondum vegi því að ég fylgi orði þínu.
102
Ég vík eigi frá reglum þínum því að þú hefur kennt mér.
103
Hve sæt eru fyrirheit þín gómi mínum, hunangi betri munni mínum.
104
Af fyrirmælum þínum er ég skynsamur orðinn, þess vegna hata ég sérhvern lygaveg.
105
Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.
106
Ég hef svarið og haldið það að varðveita þín réttlátu ákvæði.
107
Ég er mjög beygður, Drottinn, lát mig lífi halda eftir orði þínu.
108
Drottinn, tak með velþóknun við gjöfum munns míns og kenn mér ákvæði þín.
109
Líf mitt er ætíð í hættu en ég hef ekki gleymt lögmáli þínu.
110
Óguðlegir hafa lagt snöru fyrir mig en ég hef ekki villst frá fyrirmælum þínum.
111
Fyrirmæli þín eru hlutskipti mitt um aldur því að þau gleðja hjarta mitt.
112
Ég hef hneigt hjarta mitt að því að hlýða boðum þínum um aldur og allt til enda.
113
Ég hata tvílráða menn en lögmál þitt elska ég.
114
Þú ert skjól mitt og skjöldur, ég vona á orð þitt.
115
Víkið frá mér, illgjörðamenn, að ég megi halda boð Guðs míns.
116
Styð mig með orði þínu, að ég megi lifa, og lát von mína eigi verða til skammar.
117
Styð mig, að ég megi frelsast og ætíð gefa gaum að lögum þínum.
118
Þú hafnar öllum sem villast frá lögum þínum því að svik þeirra eru til einskis.
119
Þú metur sem sorp alla óguðlega, þess vegna elska ég fyrirmæli þín.
120
Ég nötra af hræðslu við þig og skelfist dóma þína.
121
Ég hef iðkað rétt og réttlæti, sel mig eigi í hendur kúgurum mínum.
122
Tryggðu þjóni þínum velfarnað, lát eigi ofstopamennina kúga mig.
123
Augu mín daprast af þrá eftir hjálp þinni og réttlátu fyrirheiti þínu.
124
Far með þjón þinn eftir miskunn þinni og kenn mér lög þín.
125
Ég er þjónn þinn, veit mér skilning til að þekkja reglur þínar.
126
Tími er kominn fyrir Drottin að taka í taumana, þeir hafa rofið lögmál þitt.
127
Þess vegna elska ég boð þín meira en gull, já skíragull.
128
Þess vegna fylgi ég öllum fyrirmælum þínum af kostgæfni og hata sérhvern lygaveg.
129
Undursamleg eru fyrirmæli þín, þess vegna held ég þau.
130
Þegar orð þín ljúkast upp ljóma þau og gera fávísa vitra.
131
Ég opna munn minn af áfergju því að ég þrái boð þín.
132
Snú þér til mín og ver mér náðugur eins og þeim er ætlað sem elska nafn þitt.
133
Ger skref mín örugg með fyrirheiti þínu og lát ekkert ranglæti drottna yfir mér.
134
Leys mig undan kúgun manna, að ég megi halda fyrirmæli þín.
135
Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn og kenn mér lög þín.
136
Augu mín flóa í tárum af því að menn varðveita eigi lögmál þitt.
137
Réttlátur ert þú, Drottinn, og réttmætir eru dómar þínir.
138
Þú hefur sett lög þín af réttlæti og mikilli trúfesti.
139
Ákafi minn tærir mig því að fjendur mínir hafa gleymt orðum þínum.
140
Orð þitt er hreint og tært og þjónn þinn elskar það.
141
Ég er lítilmótlegur og fyrirlitinn en fyrirmælum þínum hef ég eigi gleymt.
142
Réttlæti þitt er eilíft réttlæti og lögmál þitt sannleikur.
143
Neyð og hörmung hafa mér að höndum borið, boð þín eru unun mín.
144
Fyrirmæli þín eru rétt um eilífð, veit mér skilning svo að ég megi lifa.
145
Ég hrópa af öllu hjarta, bænheyr mig, Drottinn, ég vil halda lög þín.
146
Ég ákalla þig, hjálpa þú mér, að ég megi varðveita fyrirmæli þín.
147
Ég er á ferli fyrir dögun, hrópa og bíð orða þinna.
148
Fyrr en vakan hefst eru augu mín vökul og ég íhuga orð þitt.
149
Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni, lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.
150
Fláráðir ofsækjendur mínir eru nærri, þeir eru fjarri lögmáli þínu.
151
Þú ert nálægur, Drottinn, og öll boð þín eru sannleikur.
152
Fyrir löngu hef ég vitað um reglur þínar; þú settir þær, að þær giltu um eilífð.
153
Sjá eymd mína og frelsa mig því að ég hef eigi gleymt lögmáli þínu.
154
Flyt þú mál mitt og bjarga mér, lát mig lífi halda samkvæmt fyrirheiti þínu.
155
Hjálpræðið er fjarri óguðlegum því að þeir leita eigi fyrirmæla þinna.
156
Mikil er miskunn þín, Drottinn, lát mig lífi halda eftir ákvæðum þínum.
157
Margir ofsækja mig og þrengja að mér, ég hef ekki vikið frá fyrirmælum þínum.
158
Ég sé trúrofana og kenni viðbjóðs; þeir varðveita eigi orð þitt.
159
Sjá, hve ég elska fyrirmæli þín, lát mig lífi halda, Drottinn, eftir miskunn þinni.
160
Sérhvert orð þitt er satt og réttlætisákvæði þín vara að eilífu.
161
Höfðingjar ofsækja mig að tilefnislausu en hjarta mitt óttast orð þitt.
162
Ég gleðst yfir fyrirheiti þínu eins og sá er fær mikið herfang.
163
Lygi hata ég og fyrirlít en lögmál þitt elska ég.
164
Sjö sinnum á dag lofa ég þig fyrir réttlát ákvæði þín.
165
Gnótt friðar hafa þeir er elska lögmál þitt og þeim er við engri hrösun hætt.
166
Ég vænti hjálpræðis þíns, Drottinn, og fer að boðum þínum.
167
Ég fylgi fyrirmælum þínum og elska þau mjög.
168
Ég held boð þín og fyrirmæli og allir vegir mínir eru þér kunnir.
169
Hróp mitt nálgist auglit þitt, Drottinn, veit mér skilning samkvæmt orði þínu.
170
Grátbeiðni mín komi fyrir auglit þitt, frelsa mig eins og þú hefur heitið.
171
Lofsöngur streymi af vörum mínum því að þú kennir mér lög þín,
172
tunga mín syngi orði þínu lof því að öll boð þín eru réttlát.
173
Hönd þín veiti mér lið því að ég kaus fyrirmæli þín.
174
Ég þrái hjálpræði þitt, Drottinn, og lögmál þitt er unun mín.
175
Gef mér að lifa að ég lofi þig og reglur þínar veiti mér lið.
176
Ég villist eins og týndur sauður, leita þú þjóns þíns því að ég hef ekki gleymt boðum þínum.
← Chapter 118
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 67
Chapter 68
Chapter 69
Chapter 70
Chapter 71
Chapter 72
Chapter 73
Chapter 74
Chapter 75
Chapter 76
Chapter 77
Chapter 78
Chapter 79
Chapter 80
Chapter 81
Chapter 82
Chapter 83
Chapter 84
Chapter 85
Chapter 86
Chapter 87
Chapter 88
Chapter 89
Chapter 90
Chapter 91
Chapter 92
Chapter 93
Chapter 94
Chapter 95
Chapter 96
Chapter 97
Chapter 98
Chapter 99
Chapter 100
Chapter 101
Chapter 102
Chapter 103
Chapter 104
Chapter 105
Chapter 106
Chapter 107
Chapter 108
Chapter 109
Chapter 110
Chapter 111
Chapter 112
Chapter 113
Chapter 114
Chapter 115
Chapter 116
Chapter 117
Chapter 118
Chapter 119
Chapter 120
Chapter 121
Chapter 122
Chapter 123
Chapter 124
Chapter 125
Chapter 126
Chapter 127
Chapter 128
Chapter 129
Chapter 130
Chapter 131
Chapter 132
Chapter 133
Chapter 134
Chapter 135
Chapter 136
Chapter 137
Chapter 138
Chapter 139
Chapter 140
Chapter 141
Chapter 142
Chapter 143
Chapter 144
Chapter 145
Chapter 146
Chapter 147
Chapter 148
Chapter 149
Chapter 150
Chapter 120 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66
67
68
69
70
71
72
73
74
75
76
77
78
79
80
81
82
83
84
85
86
87
88
89
90
91
92
93
94
95
96
97
98
99
100
101
102
103
104
105
106
107
108
109
110
111
112
113
114
115
116
117
118
119
120
121
122
123
124
125
126
127
128
129
130
131
132
133
134
135
136
137
138
139
140
141
142
143
144
145
146
147
148
149
150