bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Psalms 78
Psalms 78
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 77
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 67
Chapter 68
Chapter 69
Chapter 70
Chapter 71
Chapter 72
Chapter 73
Chapter 74
Chapter 75
Chapter 76
Chapter 77
Chapter 78
Chapter 79
Chapter 80
Chapter 81
Chapter 82
Chapter 83
Chapter 84
Chapter 85
Chapter 86
Chapter 87
Chapter 88
Chapter 89
Chapter 90
Chapter 91
Chapter 92
Chapter 93
Chapter 94
Chapter 95
Chapter 96
Chapter 97
Chapter 98
Chapter 99
Chapter 100
Chapter 101
Chapter 102
Chapter 103
Chapter 104
Chapter 105
Chapter 106
Chapter 107
Chapter 108
Chapter 109
Chapter 110
Chapter 111
Chapter 112
Chapter 113
Chapter 114
Chapter 115
Chapter 116
Chapter 117
Chapter 118
Chapter 119
Chapter 120
Chapter 121
Chapter 122
Chapter 123
Chapter 124
Chapter 125
Chapter 126
Chapter 127
Chapter 128
Chapter 129
Chapter 130
Chapter 131
Chapter 132
Chapter 133
Chapter 134
Chapter 135
Chapter 136
Chapter 137
Chapter 138
Chapter 139
Chapter 140
Chapter 141
Chapter 142
Chapter 143
Chapter 144
Chapter 145
Chapter 146
Chapter 147
Chapter 148
Chapter 149
Chapter 150
Chapter 79 →
1
Asafsmaskíl. Hlýð þú, þjóð mín, á kenningu mína, legg eyrun að ræðu munns míns.
2
Ég vil opna munn minn með líkingu og túlka liðna tíð.
3
Það sem vér höfum heyrt og þekkjum og feður vorir sögðu oss frá
4
ætlum vér ekki að dylja fyrir börnum þeirra heldur segja komandi kynslóð frá dáðum Drottins og mætti hans og máttarverkunum sem hann vann.
5
Hann setti Jakobi reglur og lögmál í Ísrael sem hann bauð feðrum vorum að kenna börnum sínum
6
svo að komandi kynslóð nemi og börn, sem síðar fæðast, gangi fram og segi sínum börnum.
7
Þau setji traust sitt á Guð, gleymi ekki stórvirkjum Guðs og varðveiti boðorð hans
8
en verði ekki eins og feður þeirra, þrjósk og ódæl kynslóð, reikul í ráði með anda ótrúan Guði.
9
Niðjar Efraíms, vopnaðir boga, flýðu á orrustudeginum.
10
Þeir héldu ekki sáttmála Guðs og vildu ekki fylgja lögum hans,
11
gleymdu stórvirkjum Drottins og máttarverkunum sem hann lét þá sjá.
12
Hann drýgði dáðir í augsýn feðra þeirra í Egyptalandi, á Sóanvöllum.
13
Hann klauf hafið og leiddi þá yfir og lét vatnið standa sem vegg.
14
Hann leiddi þá með skýi um daga og um nætur með lýsandi eldi.
15
Hann klauf kletta í auðninni og gaf þeim gnægð vatns eins og úr frumdjúpinu.
16
Hann lét læki spretta úr kletti, vatnið streyma niður sem fljót.
17
Þó héldu þeir áfram að syndga gegn honum, rísa í eyðimörkinni gegn Hinum hæsta.
18
Þeir freistuðu Guðs af ásetningi með því að heimta mat að vild sinni.
19
Þeir mæltu gegn Guði og sögðu: „Getur Guð búið borð í eyðimörkinni?
20
Víst laust hann klett svo að vatn flæddi út og lækir spruttu fram en getur hann einnig gefið oss brauð og séð lýð sínum fyrir kjöti?“
21
Drottinn heyrði þetta og reiddist, eldur blossaði upp gegn Jakobi og reiði brann gegn Ísrael
22
því að þeir trúðu ekki Guði eða treystu hjálp hans.
23
Þá bauð hann skýjunum í hæðum og opnaði dyr himins,
24
lét manna rigna yfir þá til matar og gaf þeim himnakorn,
25
englabrauð fengu menn að eta, hann sendi þeim fæðu og þeir urðu mettir.
26
Hann lét austanvindinn blása af himnum og knúði sunnanvindinn með mætti sínum.
27
Hann lét kjöti rigna yfir þá sem dufti og mergð fugla eins og sandi á sjávarströnd.
28
Hann lét þá falla niður í búðir sínar umhverfis bústað sinn.
29
Þeir átu og urðu vel saddir, hann sendi þeim það sem þeir girntust.
30
Áður en græðgin hvarf þeim, meðan maturinn var enn í munni þeirra,
31
reis heift Guðs gegn þeim og hann deyddi valdamenn þeirra, felldi æskumenn Ísraels.
32
Þrátt fyrir allt þetta héldu þeir áfram að syndga gegn honum og trúðu ekki á máttarverk hans.
33
Hann lét því daga þeirra hverfa eins og andgust, ár þeirra enda í skelfingu.
34
Þegar hann laust þá leituðu þeir hans, iðruðust og sneru sér til Guðs,
35
minntust þess að Guð var klettur þeirra og Hinn hæsti Guð frelsari þeirra.
36
Í munni þeirra var hræsni, með tungu sinni lugu þeir að honum.
37
Hjarta þeirra var ekki stöðugt gagnvart honum og þeir reyndust ótrúir sáttmála hans.
38
En hann er miskunnsamur, fyrirgefur misgjörðir og eyðir þeim ekki. Oft stillir hann reiði sína, heldur aftur af bræði sinni.
39
Hann minntist þess að þeir voru hold, andgustur sem líður burt og snýr ekki aftur.
40
Hve oft risu þeir ekki gegn honum í auðninni, styggðu hann í eyðimörkinni?
41
Þeir reyndu Guð hvað eftir annað og vanvirtu Hinn heilaga í Ísrael.
42
Þeir minntust ekki handar hans, dagsins sem hann frelsaði þá frá óvininum,
43
þegar hann gerði tákn sín í Egyptalandi og undur sín á Sóanvöllum.
44
Hann breytti fljótum þeirra í blóð og þeir gátu ekki drukkið vatn úr lækjum sínum.
45
Hann sendi flugur gegn þeim sem átu þá og froska sem eyddu þeim.
46
Hann gaf átvargi afurðir þeirra og engisprettum uppskeru þeirra.
47
Hann eyddi vínvið þeirra með hagli og mórberjatré þeirra með frosti.
48
Hann ofurseldi fé þeirra drepsótt og hjarðir þeirra sjúkdómum.
49
Hann sendi logandi heift sína gegn þeim, harm, bræði og nauðir, sveitir illra sendiboða.
50
Hann gaf reiðinni lausan taum, þyrmdi ekki lífi þeirra heldur ofurseldi þá drepsótt.
51
Hann laust alla frumburði í Egyptalandi, frumgróða karlmennskunnar í tjöldum Kams.
52
Því næst hélt hann af stað með þjóð sína eins og fjársafn, leiddi hana eins og hjörð um eyðimörkina.
53
Hann leiddi þá óhulta og óttalausa en óvini þeirra huldi hafið.
54
Síðan fór hann með þá til síns heilaga lands, til fjalllendisins sem hægri hönd hans hafði unnið,
55
stökkti þjóðum undan þeim, skipti landi þeirra í erfðalönd með hlutkesti, lét ættbálka Ísraels setjast að í tjöldum þeirra.
56
En þeir freistuðu Hins hæsta Guðs, risu gegn honum og héldu ekki lög hans,
57
sviku hann í tryggðum eins og feður þeirra, brugðust eins og svikull bogi.
58
Þeir reittu hann til reiði með fórnarhæðum sínum, vöktu afbrýði hans með skurðgoðum sínum.
59
Guð heyrði það og reiddist og hafnaði Ísrael að fullu.
60
Hann yfirgaf bústaðinn í Síló, tjaldið sem hann bjó í meðal manna.
61
Hann lét herleiða mátt sinn, seldi dýrð sína í hendur fjandmönnum.
62
Hann ofurseldi lýð sinn sverðseggjum, reiddist arfleifð sinni.
63
Æskumenn hans gleypti eldurinn, meyjar hans urðu af brúðkaupssöngvum,
64
prestar hans féllu fyrir sverði og ekkjur hans fengu ekki harmljóð flutt.
65
Þá vaknaði Drottinn eins og af svefni, eins og bardagamaður sem vaknar af ölvímu.
66
Hann rak fjandmenn sína á flótta, gerði þeim ævarandi háðung.
67
Hann hafnaði tjaldi Jósefs, kaus sér eigi ættbálk Efraíms
68
en valdi sér Júda ætt, Síonarfjall sem hann elskaði.
69
Hann reisti helgidóm sinn sem himinhæðir, grundvallaði hann að eilífu eins og jörðina.
70
Síðan útvaldi hann þjón sinn, Davíð, sótti hann í fjárbyrgin.
71
Hann tók hann frá lambánum til þess að vera hirðir fyrir Jakob, lýð sinn, og arfleifð sína, Ísrael.
72
Davíð var hirðir þeirra af heilum hug, leiddi þá með hygginni hendi.
← Chapter 77
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 67
Chapter 68
Chapter 69
Chapter 70
Chapter 71
Chapter 72
Chapter 73
Chapter 74
Chapter 75
Chapter 76
Chapter 77
Chapter 78
Chapter 79
Chapter 80
Chapter 81
Chapter 82
Chapter 83
Chapter 84
Chapter 85
Chapter 86
Chapter 87
Chapter 88
Chapter 89
Chapter 90
Chapter 91
Chapter 92
Chapter 93
Chapter 94
Chapter 95
Chapter 96
Chapter 97
Chapter 98
Chapter 99
Chapter 100
Chapter 101
Chapter 102
Chapter 103
Chapter 104
Chapter 105
Chapter 106
Chapter 107
Chapter 108
Chapter 109
Chapter 110
Chapter 111
Chapter 112
Chapter 113
Chapter 114
Chapter 115
Chapter 116
Chapter 117
Chapter 118
Chapter 119
Chapter 120
Chapter 121
Chapter 122
Chapter 123
Chapter 124
Chapter 125
Chapter 126
Chapter 127
Chapter 128
Chapter 129
Chapter 130
Chapter 131
Chapter 132
Chapter 133
Chapter 134
Chapter 135
Chapter 136
Chapter 137
Chapter 138
Chapter 139
Chapter 140
Chapter 141
Chapter 142
Chapter 143
Chapter 144
Chapter 145
Chapter 146
Chapter 147
Chapter 148
Chapter 149
Chapter 150
Chapter 79 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66
67
68
69
70
71
72
73
74
75
76
77
78
79
80
81
82
83
84
85
86
87
88
89
90
91
92
93
94
95
96
97
98
99
100
101
102
103
104
105
106
107
108
109
110
111
112
113
114
115
116
117
118
119
120
121
122
123
124
125
126
127
128
129
130
131
132
133
134
135
136
137
138
139
140
141
142
143
144
145
146
147
148
149
150