bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
2 Chronicles 11
2 Chronicles 11
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 12 →
1
Þegar Rehabeam kom til Jerúsalem safnaði hann saman öllum ættbálki Júda og Benjamíns, hundrað og áttatíu þúsund manna einvalaliði, til að hefja stríð og berjast gegn Ísrael og vinna konungdæmið aftur handa Rehabeam.
2
Þá kom orð Drottins til guðsmannsins Semaja:
3
„Segðu Rehabeam Júdakonungi, syni Salómons, og öllum Ísraelsmönnum í Júda og Benjamín:
4
Svo segir Drottinn: Farið ekki upp eftir til að berjast við bræður ykkar. Hver og einn ykkar skal halda til síns heima þar sem ég er valdur að því sem gerst hefur.“ Þeir hlýddu boðskap Drottins og sneru við í stað þess að halda gegn Jeróbóam.
5
Rehabeam settist að í Jerúsalem. Hann víggirti ýmsar borgir í Júda og gerði þær að virkjum.
6
Hann víggirti Betlehem, Etam, Tekóa,
7
Bet Súr, Sókó, Adúllam,
8
Gat, Maresa, Síf,
9
Adóraím, Lakís, Aseka,
10
Sorea, Ajalon og Hebron. Þetta voru virkisborgir í Júda og Benjamín.
11
Hann styrkti virkin og setti foringja yfir þau og kom þar fyrir birgðum af mat, olíu og víni.
12
Hann kom einnig fyrir skjöldum og lensum í hverri borg og efldi þær mjög. Rehabeam ríkti yfir Júda og Benjamín.
13
Prestarnir og Levítarnir, sem bjuggu dreifðir um allan Ísrael, komu frá landsvæðum sínum og gengu honum á hönd.
14
Levítarnir yfirgáfu beitilönd sín og eignir og héldu til Júda og Jerúsalem því að Jeróbóam og synir hans hindruðu þá í að þjóna Drottni sem prestar og
15
settu presta sína til þjónustu á fórnarhæðunum og fyrir geithafrana og nautkálfana sem hann hafði látið gera.
16
Þeim fylgdu þeir úr öllum ættbálkum Ísraels sem af einlægni leituðu Drottins, Guðs Ísraels. Þeir komu til Jerúsalem til að færa Drottni, Guði feðra sinna, fórnir.
17
Þeir efldu Júdaríki og styrktu Rehabeam, son Salómons, í þrjú ár því að þeir fylgdu stefnu Davíðs og Salómons í þrjú ár.
18
Rehabeam tók Makalat sér fyrir konu. Hún var dóttir Jerímóts, Davíðssonar og Abíhaílar, dóttur Elíabs Ísaísonar.
19
Hún fæddi honum synina Jeús, Semarja og Saham.
20
Eftir hana tók hann Maöku, dóttur Absalons, sér fyrir konu. Hún fæddi honum Abía, Attaí, Sísa og Selómít.
21
Rehabeam elskaði Maöku Absalonsdóttur meira en allar aðrar konur sínar og hjákonur en hann hafði tekið sér átján eiginkonur og sextíu hjákonur og eignast tuttugu og átta syni og sextíu dætur.
22
Rehabeam gerði Abía, son Maöku, að leiðtoga og höfðingja meðal bræðra sinna því að hann ætlaði að gera hann að konungi.
23
Hann fór hyggilega að ráði sínu og dreifði sonum sínum í öll héruð Júda og Benjamíns og í virkisborgirnar. Hann fékk þeim gnægð vista og tók þeim fjölda kvenna.
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 12 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36