bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
2 Chronicles 17
2 Chronicles 17
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 16
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 18 →
1
Jósafat, sonur Asa, varð konungur eftir hann og gerðist voldugur í Ísrael.
2
Hann flutti herlið til allra víggirtra borga í Júda og kom fyrir setuliði í Júda og borgum Efraíms sem Asa, faðir hans, hafði tekið.
3
Drottinn var með Jósafat af því að hann fylgdi fordæmi Davíðs, forföður síns. Hann leitaði ekki til Baalanna
4
heldur til Guðs föður síns. Hann fylgdi boðum hans og hegðaði sér ekki eins og Ísraelsmenn.
5
Þess vegna efldi Drottinn konungdóminn í hendi hans. Allir Júdamenn færðu Jósafat gjafir svo að hann hlaut mikil auðæfi og mikla vegsemd.
6
Hann var kappsamur í þjónustu sinni við Drottin og fjarlægði einnig fórnarhæðirnar og Asérustólpana frá Júda.
7
Á þriðja stjórnarári sínu sendi hann Benhaíl, Óbadía, Sakaría, Netaneel og Míkaja, embættismenn sína, til að kenna í borgum Júda.
8
Með þeim sendi hann Levítana Semaja, Netanja, Sebadja, Asahel, Semíramót, Jónatan, Adónía, Tobía og Tob Adónía ásamt prestunum Elísama og Jóram.
9
Þegar þeir kenndu í Júda höfðu þeir með sér lögmálsbók Drottins og fóru um allar borgir Júda og kenndu fólkinu.
10
Drottinn lét skelfingu koma yfir öll konungsríkin umhverfis Júda svo að þau þorðu ekki að ráðast á Jósafat.
11
Filistear færðu Jósafat mikið silfur í skatt. Arabar færðu honum einnig fénað, sjö þúsund og sjö hundruð hrúta og sjö þúsund og sjö hundruð geithafra.
12
Þannig varð Jósafat æ voldugri. Hann reisti virki og vistaborgir í Júda
13
og átti miklar vistir þar. Jósafat hafði hrausta hermenn í Jerúsalem
14
og gegndu þeir þjónustu eftir ætterni. Adna yfirforingi stjórnaði foringjum þúsund manna liða frá Júda. Undir stjórn hans voru þrjú hundruð þúsund hraustir hermenn.
15
Næstur honum var foringinn Jóhanan. Undir stjórn hans voru tvö hundruð og áttatíu þúsund hermenn.
16
Næstur honum var Amasja Síkríson sem hafði gengið til liðs við Drottin að eigin frumkvæði. Undir hans stjórn voru tvö hundruð þúsund hraustir hermenn.
17
Frá Benjamín kom Eljada, hraustur hermaður. Undir stjórn hans voru tvö hundruð þúsund hermenn, vopnaðir bogum og skjöldum.
18
Næstur honum var Jósabad. Undir stjórn hans voru hundrað og áttatíu þúsund menn, búnir til herþjónustu.
19
Þetta voru þeir sem þjónuðu konungi auk þeirra sem hann hafði komið fyrir í víggirtu borgunum hvarvetna í Júda.
← Chapter 16
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 18 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36