bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
2 Chronicles 22
2 Chronicles 22
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 21
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 23 →
1
Jerúsalembúar gerðu nú Ahasía, yngsta son Jórams, að konungi í hans stað því að ræningjaflokkurinn, sem hafði komið með Aröbunum inn í búðirnar, hafði drepið alla eldri bræðurna. Þannig tók Ahasía ríki, sonur Jórams Júdakonungs.
2
Ahasía var tuttugu og tveggja ára þegar hann varð konungur og ríkti eitt ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Atalía og var afkomandi Omrí.
3
Ahasía breytti eins og ætt Akabs. Móðir hans var ráðgjafi hans svo að hann lifði guðlausu lífi.
4
Hann gerði það sem illt var í augum Drottins eins og ættmenn Akabs því að þeir voru ráðgjafar hans eftir fráfall föður hans og það varð honum til falls.
5
Hann fylgdi ráðum þeirra og fór með Jóram Akabssyni Ísraelskonungi í stríð gegn Hasael Aramskonungi við Ramót í Gíleað. En Aramearnir særðu Jóram
6
svo að hann sneri heim til Jesreel. Þar ætlaði hann að láta gróa sár sín sem Aramearnir höfðu veitt honum við Rama þegar hann barðist gegn Hasael Aramskonungi. En Ahasía Jóramsson Júdakonungur fór niður eftir til að heimsækja Jóram Akabsson í Jesreel af því að hann var veikur.
7
En Guð hafði tekið þá ákvörðun að Ahasía færi til Jórams. Þegar hann var kominn þangað fór hann með Jóram á móti Jehú Nimsísyni sem Drottinn hafði látið smyrja til þess að tortíma ætt Akabs.
8
Þegar Jehú var að framfylgja dóminum yfir ætt Akabs rakst hann á hirðmenn frá Júda og bræðrasyni Ahasía, sem voru í þjónustu Ahasía, og drap þá.
9
Því næst lét hann leita að Ahasía. Hann var gripinn í Samaríu, þar sem hann hafði falið sig, og færður fyrir Jehú sem drap hann. Hann var grafinn af því að menn sögðu: „Hann var sonur Jósafats sem leitaði Drottins af öllu hjarta.“ Nú var enginn eftir af ætt Ahasía sem var fær um að taka við konungdómi.
10
Þegar Atalía, móðir Ahasía, sá að sonur hennar var dáinn tók hún að tortíma allri konungsættinni í Júda.
11
En Jósaba, dóttir konungsins, tók Jóas Ahasíason úr hópi sona konungsins sem átti að drepa. Hún laumaði honum og fóstru hans inn í svefnherbergið. Hún faldi hann svo að Atalía gat ekki drepið hann. Jósaba, dóttir Jórams konungs, eiginkona Jójada prests, var systir Ahasía.
12
Hann var falinn hjá henni í húsi Guðs í sex ár á meðan Atalía ríkti yfir landinu.
← Chapter 21
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 23 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36