bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
2 Chronicles 19
2 Chronicles 19
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 20 →
1
Jósafat, konungur í Júda, sneri nú heill á húfi heim til Jerúsalem.
2
Þá gekk sjáandinn Jehú Hananíson á móti honum og sagði við Jósafat konung: „Ber þér að hjálpa hinum guðlausa og vingast við þá sem hata Drottin? Vegna þess hvílir reiði Drottins á þér.
3
Eigi að síður hefur ýmislegt gott fundist í fari þínu. Þannig hefur þú upprætt Asérustólpana úr landinu og einbeitt þér að því að leita Guðs.“
4
Jósafat bjó nú í Jerúsalem en fór aftur í leiðangur á meðal þjóðarinnar, frá Beerseba til Efraímsfjalla, til að snúa henni aftur til Drottins, Guðs feðra hennar.
5
Hann skipaði einnig dómara í landinu, í sérhverri víggirtri borg í Júda.
6
Hann gaf dómurunum svohljóðandi fyrirmæli: „Hafið gát á því sem þið gerið því að þið haldið ekki dómþing í umboði manna heldur í umboði Drottins. Hann er með ykkur þegar þið kveðið upp dóma.
7
Látið nú lotningu fyrir Drottni stjórna gerðum ykkar. Gætið að því sem þið gerið því að hjá Drottni, Guði okkar, er hvorki til ranglæti, manngreinarálit né mútuþægni.“
8
Í Jerúsalem skipaði Jósafat einnig nokkra af Levítunum, prestunum og ættarhöfðingjum Ísraels í dómstól Drottins vegna deilna meðal íbúanna í Jerúsalem.
9
Hann gaf þeim svohljóðandi fyrirmæli: „Þetta skuluð þið gera af trúmennsku og heilum hug og lotningu fyrir Drottni:
10
Þegar bræður ykkar, sem búa í heimabæjum sínum, skjóta til ykkar deilu skuluð þið vara þá við svo að þeir verði ekki sekir fyrir Drottni og reiði hans komi yfir ykkur og bræður ykkar. Þetta á við, hvort sem um er að ræða mun á blóðsektum eða mun á leiðsögn og fyrirmælum eða lögum og reglum. Framfylgið þessu svo að þið verðið ekki sekir.
11
Amarja yfirprestur er yfir ykkur í öllum málefnum Drottins en Sebadja Ísmaelsson, höfðingi Júdaættar, er yfir ykkur í öllum málefnum konungs. Levítarnir munu verða embættismenn í þjónustu ykkar. Verið hughraustir. Drottinn sé með þeim sem breytir rétt.“
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 20 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36