bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
2 Chronicles 3
2 Chronicles 3
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 4 →
1
Salómon hóf að reisa hús Drottins í Jerúsalem á Móríafjalli þar sem Drottinn hafði birst Davíð, föður hans, á staðnum sem Davíð hafði ákveðið, á þreskivelli Ornans Jebúsíta.
2
Hann hóf bygginguna í öðrum mánuðinum á fjórða stjórnarári sínu.
3
Grunnflötur hússins, sem Salómon ákvað að reisa, var sextíu álnir á lengd og tuttugu á breidd; var alinin miðuð við eldra mál.
4
Forsalurinn fyrir framan musterissalinn var tuttugu álnir á lengd, jafnbreiður húsinu, og tuttugu álnir á hæð. Hann lagði húsið skíragulli að innan.
5
Hann þiljaði stóra salinn með kýprusviði og þakti skíragulli og skreytti með pálmum og blómafestum.
6
Hann greypti einnig dýra steina í húsið og gullið var Parvaímgull.
7
Þannig þakti hann húsið, bjálka, þröskulda, veggi og hurðir gulli og greypti kerúba í veggina.
8
Hann gerði stúku hins allra helgasta. Hún var tuttugu álnir á lengd, eins og húsið var á breiddina, og tuttugu álnir á breidd. Hann þakti hana skíragulli sem vó sex hundruð talentur.
9
Gullið, sem fór í naglana, vó fimmtíu sikla. Hann þakti einnig efri herbergin gulli.
10
Hann gerði líkneski af tveimur kerúbum í stúku hins allra helgasta og voru þeir þaktir gulli.
11
Vængir kerúbanna voru tuttugu álnir á lengd. Vængur annars kerúbsins var fimm álnir á lengd og snerti vegg hússins. Hinn vængurinn var jafnlangur og snerti væng hins kerúbsins.
12
Vængur hins kerúbsins var einnig fimm álnir á lengd og nam við vegg hússins, hinn vængurinn var jafnlangur og snerti væng fyrrnefnda kerúbsins.
13
Vænghaf kerúbanna var tuttugu álnir. Þeir stóðu uppréttir og andlit þeirra sneru að musterissalnum.
14
Hann gerði fortjaldið úr bláum og rauðum purpura, skarlati og líni og skreytti það kerúbum.
15
Framan við húsið gerði hann tvær súlur, þrjátíu og fimm álnir á hæð. Höfuð hvorrar um sig var fimm álnir.
16
Hann gerði einnig keðjur eins og hálsfestar og kom þeim fyrir efst á súlunum, sömuleiðis hundrað granatepli og festi þau á keðjurnar.
17
Hann reisti súlurnar framan við musterissalinn, aðra hægra megin og hina vinstra megin. Hann nefndi þá sem var hægra megin Jakín og þá til vinstri Bóas.
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 4 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36