bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
2 Chronicles 4
2 Chronicles 4
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 5 →
1
Hann gerði eiraltari, tuttugu álnir á lengd, tuttugu álnir á breidd og tíu á hæð.
2
Hann steypti einnig hafið. Tíu álnir voru milli barma. Það var hringlaga, fimm álnir á dýpt og þrjátíu álnir að ummáli.
3
Neðan við barm þess voru myndir af nautum allan hringinn, tíu á hverri alin. Allt umhverfis hafið voru tvær raðir af nautum og voru þau samsteypt hafinu.
4
Hafið stóð á tólf nautum. Sneru þrjú í norður, þrjú í vestur, þrjú í suður og þrjú í austur. Hafið hvíldi ofan á þeim og sneru bakhlutar þeirra inn.
5
Hafið var þverhönd á þykkt og barmur þess mótaður eins og barmur bikars, eins og útsprungið lótusblóm. Það tók þrjú þúsund böt.
6
Hann gerði einnig tíu ker, ætluð til þvotta, og kom fimm þeirra fyrir sunnan megin og fimm norðan megin. Í þeim skyldi skola það sem tilreitt var til brennifórnar en hafið var til þvotta fyrir prestana.
7
Hann gerði tíu gullljósastikur samkvæmt fyrirmælum um þær og lét koma fyrir í musterissalnum, fimm hægra megin og fimm vinstra megin.
8
Hann gerði einnig tíu borð og kom þeim fyrir í musterissalnum, fimm hægra megin og fimm vinstra megin. Enn fremur gerði hann hundrað skálar úr gulli.
9
Hann gerði einnig forgarð prestanna og stóra forgarðinn og hurðirnar fyrir forgarðinn. Hurðirnar þakti hann eir.
10
Hann kom hafinu fyrir við suðurhlið hússins gegnt suðaustri.
11
Húram gerði pottana, skóflurnar og skálarnar. Þar með lauk Húram því verki sem hann vann fyrir Salómon konung við hús Guðs:
12
Tvær súlur, tvö hvelfd súlnahöfuð ofan á súlunum, bæði netin til að hylja hvelfdu súlnahöfuðin,
13
fjögur hundruð granatepli á báðum netunum, í tveimur röðum á hvoru neti, sem huldu bæði hvelfdu súlnahöfuðin,
14
vagngrindurnar tíu og kerin tíu sem voru á vagngrindunum,
15
hafið og nautin tólf undir því,
16
pottana, skóflurnar og gafflana.
17
Konungur lét steypa þau í leirmótum í Jórdanardalnum á milli Súkkót og Sareda.
18
Salómon lét gera svo mikið af öllum þessum áhöldum að ekki var hægt að áætla þyngd eirsins í þeim.
19
Salómon gerði öll áhöldin í húsi Guðs: gullaltarið og borðin sem skoðunarbrauðin lágu á,
20
ljósastikurnar úr skíragulli, svo og lampana sem fylgdu þeim og kveikja skal á fyrir framan bakhúsið samkvæmt lögmálsákvæðunum,
21
auk þess blómin, lampana og skarbítana úr gulli og það besta gulli,
22
enn fremur hnífana, skálarnar, bollana og eldfötin úr skíragulli. Innri vængjahurðirnar að hinu allra helgasta og vængjahurðir musterissalarins voru úr gulli.
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 5 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36