bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
2 Chronicles 8
2 Chronicles 8
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 9 →
1
Þegar þau tuttugu ár voru liðin sem það tók Salómon að reisa musteri Drottins og eigið hús
2
víggirti hann borgirnar sem Húram hafði afhent Salómon og lét Ísraelsmenn setjast þar að.
3
Því næst fór Salómon til Hama Sóba og tók hana.
4
Hann víggirti einnig Tadmor í eyðimörkinni og allar birgðaborgirnar sem hann hafði reist í Hamat.
5
Hann víggirti einnig Efra og Neðra Bethóron og gerði þessar borgir að virkjum með múrum, hliðum og slagbröndum.
6
Salómon víggirti einnig Baalat og allar birgðaborgirnar sem hann átti og allar borgirnar fyrir hervagna sína, hesta og allt sem hann vildi reisa í Jerúsalem, í Líbanon og hvarvetna í ríki sínu.
7
Salómon lagði kvaðavinnu á alla sem eftir voru af Hetítum, Amorítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum og ekki voru Ísraelsmenn.
8
Það voru niðjar þeirra sem enn voru eftir í landinu og Ísraelsmenn höfðu ekki eytt. Á þá lagði Salómon kvaðavinnu sem þeir hafa unnið til þessa dags.
9
En Salómon gerði enga Ísraelsmenn að þrælum til að vinna fyrir sig. Þeir voru hermenn hans, embættismenn, hershöfðingjar og höfuðsmenn, vagnstjórar og foringjar yfir hervögnum hans og hervagnaliðum.
10
Tvö hundruð og fimmtíu verkstjórar undir stjórn landstjóra Salómons konungs stjórnuðu verkamönnunum.
11
Salómon lét dóttur faraós fara úr borg Davíðs í húsið sem hann hafði reist handa henni því að hann sagði: „Engin kona á að búa í húsi Davíðs, konungs Ísraels, því að það er heilagt þar sem örk Drottins hefur komið í það.“
12
Á þeim tíma færði Salómon Drottni brennifórn á altari Drottins sem hann hafði látið reisa fyrir framan forsalinn.
13
Hann færði fórnirnar eins og við átti hverju sinni, á hvíldardögum og við nýtt tungl, samkvæmt skipun Móse. Þetta gerði hann einnig á hátíðunum sem haldnar eru þrisvar á ári, hátíð hinna ósýrðu brauða, viknahátíðinni og laufskálahátíðinni.
14
Í samræmi við ákvörðun Davíðs, föður síns, setti hann þjónustuflokka prestanna til þjónustu og Levítana til starfa að flytja lofgjörð og þjóna ásamt prestunum eftir því sem þurfti hvern dag. Eins setti hann hliðverðina við hvert hlið samkvæmt þjónustuflokkum þeirra því að þannig hafði guðsmaðurinn Davíð mælt fyrir.
15
Ekki var vikið í neinu frá fyrirmælum konungs um prestana og Levítana né heldur um fjárhirsluna.
16
Þar með var öllu verki Salómons lokið sem unnið hafði verið að, frá því að grunnur húss Drottins var lagður. Hús Drottins var fullgert.
17
Þá hélt Salómon til Esjón Geber og Elat á strönd hafsins í Edómslandi.
18
Húram sendi honum skip og reynda sjómenn ásamt öðrum mönnum úr þjónustu sinni. Þeir komu með mönnum Salómons til Ófír, fluttu þaðan fjögur hundruð og fimmtíu talentur gulls og færðu Salómon konungi.
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 9 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36