bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Zechariah 10
Zechariah 10
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 11 →
1
Biðjið Drottin um regn þegar regntíð seinkar, Drottin, sem eldingarnar sendir, um regn og skúrir. Hann gefur mönnum brauð og gróður jarðar.
2
Orð húsguðanna voru ómerk og spásagnamennirnir sáu tálsýnir. Svör draumanna voru blekking og huggun þeirra hégómi. Vegna þess hafa þeir villst af leið eins og hjörð og eru í nauðum því að enginn er hirðirinn.
3
Hirðunum er ég bálreiður og forystuhöfrunum mun ég refsa. Drottinn allsherjar ber umhyggju fyrir hjörð sinni, ætt Júda, og hefur gert hana að tignargæðingi sínum í stríðinu.
4
Frá henni kemur hornsteinninn, frá henni tjaldhællinn, frá henni stríðsboginn, frá henni koma allir leiðtogarnir saman.
5
Í stríðinu verða þeir áþekkir þeim hetjum sem ösla for á strætum. Þeir berjast vasklega því að Drottinn er með þeim og gera þeim minnkun sem hestunum ríða.
6
Ég efli ætt Júda og bjarga ætt Jósefs. Ég leiði þá aftur heim því að þeir eiga samúð mína. Þeir skulu vera eins og ég hafi aldrei hafnað þeim. Ég er Drottinn og ég bænheyri þá.
7
Efraímsmenn verða sem hetjur og hjarta þeirra gleðst eins og af víni. Það munu börn þeirra sjá og kætast, hjarta þeirra mun fagna í Drottni.
8
Ég blístra til þeirra og safna þeim saman því að ég veiti þeim lausn, og þeir munu verða jafnfjölmennir og þeir voru forðum.
9
Ég dreifi þeim meðal þjóðanna en á fjarlægum slóðum munu þeir minnast mín, halda lífi og snúa aftur ásamt börnum sínum.
10
Ég færi þá heim aftur frá Egyptalandi og safna þeim saman frá Assýríu. Ég leiði þá inn í Gíleað og Líbanon og landið mun ekki rúma þá.
11
En þrengingar munu fara yfir hafið og ýfa öldurnar. Allir álar Nílarfljóts munu þorna. Beygður verður hroki Assýríu og Egyptaland svipt veldissprota sínum.
12
Ég geri þá styrka í Drottni og í hans nafni munu þeir ganga, segir Drottinn.
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 11 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
Recommended Reading
Commentary
Zechariah Commentaries
→
Devotional
Zechariah Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→