bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Zechariah 8
Zechariah 8
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 9 →
1
Orð Drottins allsherjar kom til mín:
2
Svo segir Drottinn allsherjar: Ég er gagntekinn af vandlæti vegna Síonar, ég loga af vandlæti hennar vegna.
3
Svo segir Drottinn: Ég sný aftur til Síonar og tek mér bólfestu í Jerúsalem. Og Jerúsalem verður nefnd borg sannleikans og fjall Drottins allsherjar fjallið helga.
4
Svo segir Drottinn allsherjar: Enn munu öldungar og gamlar konur sitja á torgum Jerúsalem, háöldruð með staf í hendi,
5
og á torgum borgarinnar verður krökkt af drengjum og stúlkum að leik.
6
Svo segir Drottinn allsherjar: Þeim sem eftir verða á þeim dögum kann að virðast það undarlegt en verður það þá einnig undarlegt í mínum augum? segir Drottinn allsherjar.
7
Svo segir Drottinn allsherjar: Ég mun frelsa lýð minn úr landi sólarupprásarinnar og landi sólsetursins.
8
Ég flyt hann heim aftur og hann mun búa í Jerúsalem og vera minn lýður, og ég verð Guð hans í trúfesti og réttvísi.
9
Svo segir Drottinn allsherjar: Herðið upp hugann, þið sem heyrið á þessum dögum orð af munni spámannanna sem uppi voru þegar grundvöllur var lagður að endurbyggingu musterisins, húss Drottins allsherjar.
10
Fyrir þá daga höfðu menn engar tekjur af vinnu sinni og engan arð af búpeningi sínum. Enginn gat þá verið á ferli óhultur fyrir óvinum því að öllum mönnum hleypti ég upp, hverjum gegn öðrum.
11
En nú mun ég ekki breyta við þá sem eftir lifa af þjóðinni eins og á fyrri dögum, segir Drottinn allsherjar,
12
því að það sem þeir sá mun dafna. Vínviðurinn ber ávöxt, jörðin gefur gróða, himinninn sendir dögg sína. Þeir sem lifa af þjóðinni munu slá eign sinni á allt þetta.
13
Og þið, ætt Júda og ætt Ísraels, sem eruð orðnar að bölvun meðal þjóðanna, ykkur hjálpa ég, nú verðið þið til blessunar. Óttist ekki, verið hughraustar.
14
Ég ásetti mér að gera ykkur illt þegar forfeður yðar reittu mig til reiði, segir Drottinn allsherjar, og þess iðraði mig ekki.
15
En nú á þessum dögum hef ég ákveðið að gera vel við Jerúsalem og Júda ætt. Óttist ekki.
16
Þetta er það sem ykkur ber að gera: Segið sannleikann hver við annan og fellið dóma af sanngirni og velvilja í hliðum yðar.
17
Enginn yðar ætli öðrum illt í hjarta sínu og fellið yður ekki við meinsæri. Allt slíkt hata ég, segir Drottinn.
18
Orð Drottins kom til mín:
19
Svo segir Drottinn allsherjar: Fastan í fjórða mánuði, fastan í fimmta mánuði, fastan í sjöunda mánuði og fastan í hinum tíunda verða ætt Júda til fagnaðar og ánægju og að kærkomnum hátíðum. Elskið sannleika og frið.
20
Svo segir Drottinn allsherjar: Enn munu koma heilar þjóðir og íbúar margra borga.
21
Íbúar einnar borgar munu fara til annarrar og segja: „Förum strax til að blíðka Drottin og leita Drottins allsherjar. Ég fer líka.“
22
Og margir ættflokkar og voldugar þjóðir koma til þess að leita Drottins allsherjar í Jerúsalem og blíðka hann.
23
Svo segir Drottinn allsherjar: Á þeim dögum munu tíu menn af öllum þjóðtungum grípa í kyrtilfald eins Gyðings og segja: „Við viljum fara með ykkur, við höfum heyrt að Guð sé með ykkur.“
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 9 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14