bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Zechariah 4
Zechariah 4
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 5 →
1
Engillinn, viðmælandi minn, vakti mig aftur, líkt og þegar menn eru vaktir af svefni,
2
og spurði mig: „Hvað sérðu?“ Ég svaraði: „Ég sé ljósastiku úr skíragulli. Á henni er skál og sjö ljósastæði og úr skálinni liggja sjö rennur til þeirra.
3
Yfir henni eru tvö ólífutré, annað hægra megin skálarinnar en hitt vinstra megin.“
4
Og ég spurði engilinn, viðmælanda minn: „Hvað tákna þessir hlutir, herra?“
5
„Veistu ekki hvað þessir hlutir tákna?“ spurði engillinn, viðmælandi minn. Og ég sagði: „Nei, herra.“
6
Þá greindi hann mér svo frá: Þetta er orð Drottins til Serúbabels: Ekki með valdi né krafti heldur fyrir anda minn, segir Drottinn allsherjar.
7
Hver ert þú, mikla fjall? Andspænis Serúbabel skaltu verða að jafnsléttu. Hann mun koma fram með hornsteininn og þá fagna menn og hrópa: „Dýrlegur. Dýrlegur!“
8
Og orð Drottins kom til mín:
9
Hendur Serúbabels hafa grundvallað þetta hús og með höndum Serúbabels verður það reist að fullu. Þá munuð þér sjá að Drottinn hersveitanna sendi mig til yðar.
10
Hverjir hæða nú dag þessara smáu verka ykkar? Þá munu þeir fagna, er þeir sjá mælilóðið í hendi Serúbabels. Þetta eru sjö augu Drottins sem skima um veröld alla.
11
Þá svaraði ég og spurði hann: „Hver eru þessi tvö ólífutré hægra og vinstra megin við ljósastikuna?“
12
Og enn talaði ég og spurði hann: „Hverjar eru þessar tvær ólífugreinar við gullrennurnar tvær? Gullin olía rennur sjálfkrafa úr þeim í gullrennurnar tvær.“
13
Hann svaraði og sagði: „Veistu ekki hvað þetta er?“ En ég sagði: „Nei, herra.“
14
Þá svaraði hann: „Þetta eru hinir tveir smurðu sem standa hjá Drottni gjörvallrar jarðarinnar.“
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 5 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14