bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Zechariah 2
Zechariah 2
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 3 →
1
Ég leit upp og sá fjögur horn.
2
Og ég spurði engilinn, sem við mig talaði, og sagði: „Hvað er þetta?“ Hann svaraði: „Þetta eru hornin sem tvístruðu Júda, Ísrael og Jerúsalem.“
3
Síðan sýndi Drottinn mér fjóra smiði.
4
„Hvað ætlast þeir fyrir?“ spurði ég. Hann svaraði: „Þetta eru hornin sem tvístruðu Júda svo að enginn gat borið höfuðið hátt. En þeir eru komnir til að skelfa þau og höggva burt horn þeirra þjóða sem lyftu hornum sínum gegn Júdalandi til að tvístra því.“
5
Ég leit upp og sá mann sem hélt á mælisnúru.
6
Og ég spurði: „Hvert ert þú að fara?“ Hann svaraði: „Til Jerúsalem til þess að mæla hana og sjá hve löng hún er og breið.“
7
Engillinn, viðmælandi minn, gekk þá fram og annar engill gekk á móti honum.
8
Og við þann engil sagði hann: „Hlauptu til unga mannsins þarna og segðu við hann: Engir borgarmúrar verða reistir um Jerúsalem. Slíkur verður sá fjöldi manna og búfjár sem þar mun dveljast.
9
En ég sjálfur, segir Drottinn, verð sem veggur úr eldi umhverfis hana og innan hennar verð ég henni til dýrðar.“
10
Burt, burt. Flýið úr Norðurlandinu, segir Drottinn, þótt ég hafi tvístrað yður eins og fjórum höfuðvindum himinsins, segir Drottinn.
11
Burt, Síon. Forðaðu þér, þú sem dvelst í Babýlon,
12
því að svo segir Drottinn allsherjar sem sendi mig í dýrð sinni til þjóðanna sem hafa tekið yður herfangi: Hver sá sem snertir við yður, snertir sjáaldur mitt,
13
og þá mun ég hefja upp hönd mína gegn þeim og þeir skulu verða þeim að herfangi sem þeir sjálfir hnepptu í ánauð. Þá verður yður ljóst að Drottinn allsherjar hefur sent mig.
14
Syngdu fagnaðarsöng, dóttirin Síon. Sjá, ég kem og mun dveljast með þér, segir Drottinn.
15
Á þeim degi munu margir heiðingjar ganga Drottni á hönd, gerast hans lýður og búa hjá þér. Þá muntu sjá að Drottinn allsherjar hefur sent mig til þín.
16
Þá mun Drottinn veita Júda arfleifð hennar í Landinu helga og enn gera Jerúsalem að hinni kjörnu borg sinni.
17
Allir dauðlegir menn veri hljóðir fyrir Drottni. Hann er risinn upp frá sínum heilaga bústað.
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 3 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14