bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Zechariah 9
Zechariah 9
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 8
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 10 →
1
Spádómur. Orð Drottins mun dveljast í Hadraklandi og Damaskus því að sjónir allra manna hvíla á Drottni eins og augu Ísraels ætta.
2
Einnig í Hamat, sem er þar nærri, og í Týrus og Sídon því að þar er gnægð visku.
3
Týrus reisti sér vígi og hrúgaði upp silfri rétt eins og mold, og gulli eins og for af strætum.
4
En Drottinn mun svipta hana eigum sínum og varpa herstyrk hennar í hafið og sjálf mun hún verða eldi að bráð.
5
Það mun Askalon sjá og óttast en Gasa riða af skelfingu og einnig Ekron er von hennar snýst í blygðun. Konungslaus verður Gasa og Askalon óbyggð,
6
þjóðablanda mun búa í Asdód og ég bind enda á yfirlæti Filistea.
7
Ég hreinsa blóðið úr munni þeirra og viðurstyggðina undan tönnum þeirra. Þeir sem eftir verða munu þá heyra til Guði vorum. Þeir verða eins og ættarhöfðingjar í Júda og Ekronmenn sem íbúar Jebús.
8
Ég slæ vörn um hús mitt eins og gegn herliði sem fram hjá fer eða aftur snýr. Enginn kúgari mun framar troða þá fótum því að nú hef ég sjálfur séð þjáningar þeirra.
9
Fagna mjög, dóttirin Síon, lát gleðilátum, dóttirin Jerúsalem. Sjá, konungur þinn kemur til þín. Réttlátur er hann og sigursæll, lítillátur og ríður asna, ungum ösnufola.
10
Hann útrýmir hervögnum úr Efraím og víghestum úr Jerúsalem. Öllum herbogum verður eytt. Hann mun boða þjóðunum frið og ríki hans mun ná frá hafi til hafs og frá Fljótinu til endimarka jarðar.
11
En vegna blóðs sáttmála þíns læt ég fanga þína lausa úr gryfjunni vatnslausu.
12
Snúið aftur til vígisins trausta, þér vongóðu bandingjar. Í dag er boðað: Ég endurgeld þér tvöfalt.
13
Ég spenni Júda eins og boga, fylli Efraím sem örvamæli, vek upp syni þína, Síon, gegn Javans niðjum og geri úr þér sverð í garps hendi.
14
Yfir þeim birtist Drottinn, örvar hans fljúga sem eldingar. Drottinn Guð þeytir hornið, hann fer með fellibyljum Suðurlandsins.
15
Drottinn allsherjar verður þeim skjöldur. Þeir munu sigra þá og troða slöngvusteina þeirra undir fótum, þeir drekka og hafa hátt sem drukknir menn, flóa yfir eins og fórnarskálar, dreyrastokknir sem altarishorn.
16
Á þeim degi mun Drottinn, Guð þeirra, bjarga þeim sem hjörð þjóðar sinnar því að þeir eru sem glitrandi krúnusteinar yfir landi hans.
17
Hvílíkt er ágæti þess, hvílík fegurð þess. Kornið fjörgar æskumenn og vínið yngismeyjar.
← Chapter 8
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 10 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14