bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Zechariah 13
Zechariah 13
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 14 →
1
Á þeim degi opnast lind fyrir Davíðs ætt og Jerúsalembúa til að þvo burt syndir og óhreinleika.
2
Á þeim degi, segir Drottinn allsherjar, afmái ég nöfn skurðgoðanna úr landinu. Þeirra verður ekki minnst framar. Og ég rek spámennina og saurgunarandann burt úr landinu.
3
Stundi þá enn einhver spámennsku munu foreldrar hans, faðir hans og móðir, segja: „Ekki skalt þú halda lífi er þú ferð með lygar í nafni Drottins.“ Og foreldrar hans, faðir hans og móðir, munu leggja hann í gegn ef hann stundar spámennsku.
4
Á þeim degi mun sérhver spámaður blygðast sín fyrir sýnir þær sem hann spáði um og ekki mun hann heldur bera loðfeld til að blekkja aðra,
5
en sérhver þeirra mun segja: „Ég er ekki spámaður. Akuryrkjumaður er ég og jarðyrkju hef ég stundað allt frá bernsku.“
6
Og spyrji þá einhver: „Hvaða áverka ertu með á brjóstinu?“ svarar hann: „Þeir eru eftir ryskingar heima hjá vinum mínum.“
7
Sverð, hef þig á loft gegn hirði mínum, manninum sem gætir hjarðar minnar, segir Drottinn allsherjar. Bana hirðinum og hjörðin mun tvístrast en ég mun annast hið smáa.
8
Svo mun fara í gjörvöllu landinu, segir Drottinn, að tveir hlutar landslýðsins verða upprættir og deyja en þriðjungur verður eftir.
9
Þann þriðjung leiði ég gegnum eldinn, hreinsa hann eins og menn hreinsa silfur og prófa hann eins og gull er prófað. Hann mun ákalla nafn mitt og ég mun svara og segja: „Þetta er lýður minn,“ og hann mun segja: „Drottinn er Guð minn.“
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 14 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
Recommended Reading
Commentary
Zechariah Commentaries
→
Devotional
Zechariah Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→