bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Zechariah 5
Zechariah 5
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 6 →
1
Enn hóf ég upp augu mín og sjá: Þar var bókfell á flugi.
2
Og hann sagði við mig: „Hvað sérðu?“ En ég svaraði: „Ég sé bókfell á flugi, tuttugu álna langt en tíu álna breitt.“
3
Hann sagði við mig: „Þetta er bölvunin sem fer yfir landið allt. Öðrum megin á það er skráð að öllum þjófum sé enn órefsað en hinum megin að öllum meinsærismönnum sé enn óhegnt.“
4
Bókfellið hef ég sent, segir Drottinn allsherjar, svo að það lendi í húsi þjófsins og þess sem sekur er um meinsæri við mig og staðnæmist þar og gereyði þar jafnt viði sem veggjum.
5
Þá gekk fram engillinn, viðmælandi minn, og sagði: „Líttu nú upp og sjáðu hvað nálgast.“
6
„Hvað er það?“ spurði ég. Og hann svaraði: „Þetta efuker sem nálgast,“ sagði hann, „er sekt þeirra í landinu öllu.“
7
Og þá lyftist blýlokið af efunni og sat kona niðri í kerinu.
8
„Þetta,“ sagði hann, „er Illskan.“ Og hann þrýsti henni niður í kerið og setti blýlokið yfir.
9
Enn leit ég upp og sá nú tvær konur birtast. Þær höfðu vængi sem storkar og stóð vindur undir á báða vegu. Og á milli sín hófu þær efuna á loft.
10
Ég spurði engilinn, viðmælanda minn: „Hvert ætla þær með efuna?“
11
Hann svaraði: „Til að reisa henni hús í Sínearlandi og að því loknu munu þær setja efuna þar á stall.“
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 6 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14