bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Job 11
Job 11
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 12 →
1
Þá svaraði Sófar frá Naama og sagði:
2
Á ekki að svara orðagjálfrinu, og á málskrafsmaðurinn að hafa rétt fyrir sér?
3
Ættu stóryrði þín að koma mönnum til að þegja, og ættir þú að spotta og enginn sneypa þig,
4
þar sem þú segir: “Kenning mín er rétt, og ég er hreinn í augum Guðs”?
5
En - ó að Guð vildi tala og ljúka upp vörum sínum í móti þér
6
og kunngjöra þér leyndardóma spekinnar, að í þeim felast margföld hyggindi, þá mundir þú kannast við, að Guð hegnir ekki til fulls misgjörð þinni.
7
Getur þú náð til botns í Guði eða komist til ystu takmarka hins Almáttka?
8
Himinhá er speki hans - hvað fær þú gjört? dýpri en undirheimar - hvað fær þú vitað?
9
Hún er lengri en jörðin að víðáttu og breiðari en hafið.
10
Ef hann ryðst fram og hneppir í varðhald og stefnir dómþing - hver aftrar honum?
11
Því að hann þekkir varmennin og sér ranglætið, þótt hann sé ekki að veita því athygli.
12
Verður óvitur maður hygginn? og fæðist skógarösnu-folald sem maður?
13
Ef þú undirbýr hjarta þitt og breiðir út lófa þína til hans,
14
- ef misgjörð er í hendi þinni, þá fjarlæg hana, og lát eigi órétt búa í tjöldum þínum -
15
já, þá munt þú flekklaus hefja höfuð þitt, munt standa fastur og eigi þurfa að óttast.
16
Já, þá munt þú gleyma mæðu þinni, þú munt minnast hennar sem vatns, er runnið er fram hjá.
17
Og lífið mun renna upp bjartara en hádegið, þótt dimmi, þá mun það verða sem morgunn.
18
Og þú munt vera öruggur, því að enn er von, og skyggnist þú um, getur þú lagst óhultur til hvíldar.
19
Og þú hvílist, og enginn hræðir þig, og margir munu reyna að koma sér í mjúkinn hjá þér.
20
En augu hinna óguðlegu daprast, fyrir þá er fokið í öll skjól, og þeirra eina von er að gefa upp andann.
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 12 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
1981 Study Bible
→