bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Job 4
Job 4
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 5 →
1
Þá svaraði Elífas frá Teman og mælti:
2
Munt þú taka því illa, þótt maður dirfist að yrða á þig? Og þó, hver fær orða bundist?
3
Sjá, þú hefir áminnt marga, og magnþrota hendur hefir þú styrkt.
4
Þann sem hrasaði, reistu orð þín á fætur, og hnígandi hnén gjörðir þú stöðug.
5
En nú, þegar það kemur yfir þig, gefst þú upp, þegar það nær þér sjálfum, missir þú móðinn.
6
Er ekki guðhræðsla þín athvarf þitt og þitt grandvara líferni von þín?
7
Hugsaðu þig um: Hver er sá, er farist hafi saklaus, og hvar hefir hinum réttvísu verið tortímt?
8
Að því, er ég hefi séð: Þeir sem plægðu rangindi og sáðu óhamingju, þeir einir hafa uppskorið það.
9
Fyrir andgusti Guðs fórust þeir, fyrir reiðiblæstri hans urðu þeir að engu.
10
Öskur ljónsins og rödd óargadýrsins, - tennur ljónshvolpanna eru brotnar sundur.
11
Ljónið ferst, af því að það vantar bráð, og hvolpar ljónynjunnar tvístrast.
12
En til mín laumaðist orð, og eyra mitt nam óminn af því -
13
í heilabrotunum, sem nætursýnirnar valda, þá er þungur svefnhöfgi er fallinn yfir mennina.
14
Ótti kom yfir mig og hræðsla, svo að öll bein mín nötruðu.
15
Og vindgustur straukst fram hjá andliti mínu, hárin risu á líkama mínum.
16
Þarna stóð það - útlitið þekkti ég ekki -, einhver mynd fyrir augum mínum, ég heyrði ymjandi rödd:
17
“Er maðurinn réttlátur fyrir Guði, nokkur mannkind hrein fyrir skapara sínum?
18
Sjá, þjónum sínum treystir hann ekki, og hjá englum sínum finnur hann galla,
19
hvað þá hjá þeim, sem búa í leirhúsum, þeim sem eiga rót sína að rekja til moldarinnar, sem marðir eru sundur sem mölur væri.
20
Milli morguns og kvelds eru þeir molaðir sundur, án þess að menn gefi því gaum, tortímast þeir gjörsamlega.
21
Tjaldstaginu er kippt upp, þeir deyja, og það í vanhyggju sinni.”
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 5 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42