bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Job 8
Job 8
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 9 →
1
Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:
2
Hversu lengi ætlar þú slíkt að mæla og orðin í munni þínum að vera hvass vindur?
3
Hallar þá Guð réttinum, eða hallar hinn Almáttki réttlætinu?
4
Hafi börn þín syndgað móti honum, þá hefir hann selt þau misgjörð þeirra á vald.
5
En ef þú leitar Guðs og biður hinn Almáttka miskunnar -
6
ef þú ert hreinn og einlægur - já, þá mun hann þegar vakna til að sinna þér og endurreisa bústað þíns réttlætis.
7
Þá mun þinn fyrri hagur virðast lítilfjörlegur, en framtíðarhagur þinn vaxa stórum.
8
Spyr þú hina fyrri kynslóð og gef þú gaum að reynslu feðranna.
9
Vér erum síðan í gær og vitum ekkert, því að skuggi eru dagar vorir á jörðunni.
10
En þeir munu fræða þig, segja þér það og bera fram orð úr sjóði hjarta síns:
11
“Sprettur pappírssefið þar sem engin mýri er? vex störin nema í vatni?
12
Enn stendur hún í blóma og verður eigi slegin, en hún skrælnar fyrr en nokkurt annað gras.”
13
Svo fer fyrir hverjum þeim, sem gleymir Guði, og von hins guðlausa verður að engu.
14
Athvarf hans brestur sundur, og köngullóarvefur er það, sem hann treystir.
15
Hann styðst við hús sitt, en það stendur ekki, hann heldur sér fast í það, en það stenst ekki.
16
Hann er safarík skríðandi flétta í sólskini, sem teygir jarðstöngla sína um garðinn
17
og vefur rótum sínum um grjóthrúgur og læsir sig milli steinanna.
18
En ef hann er upprættur frá stað sínum, þá afneitar staðurinn honum og segir: “Ég hefi aldrei séð þig!”
19
Sjá, þetta er öll gleði hans, og aðrir spretta í staðinn upp úr moldinni.
20
Sjá, Guð hafnar ekki hinum ráðvanda og heldur ekki í hönd illgjörðamanna.
21
Enn mun hann fylla munn þinn hlátri og varir þínar fagnaðarópi.
22
Þeir sem hata þig, munu skömminni klæðast, og tjald hinna óguðlegu mun horfið vera.
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 9 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42