bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Job 12
Job 12
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 13 →
1
Þá svaraði Job og sagði:
2
Já, vissulega, miklir menn eruð þér, og með yður mun spekin deyja út!
3
En ég hefi vit eins og þér, ekki stend ég yður að baki, og hver er sá, er eigi viti slíkt!
4
Athlægi vinar síns - það má ég vera, ég sem kallaði til Guðs, og hann svaraði mér, - ég, hinn réttláti, hreinlyndi, er að athlægi!
5
“Ógæfan er fyrirlitleg” - segir hinn öruggi, “hún hæfir þeim, sem skrikar fótur.”
6
Tjöld spellvirkjanna standa ósködduð, og þeir lifa áhyggjulausir, sem egna Guð til reiði, og sá sem þykist bera Guð í hendi sér.
7
En spyr þú skepnurnar, og þær munu kenna þér, fugla loftsins, og þeir munu fræða þig,
8
eða villidýrin, og þau munu kenna þér, og fiskar hafsins munu kunngjöra þér.
9
Hver þeirra veit ekki að hönd Drottins hefir gjört þetta?
10
Í hans hendi er líf alls hins lifanda og andi sérhvers mannslíkama.
11
Prófar eyrað ekki orðin, eins og gómurinn smakkar matinn?
12
Hjá öldruðum mönnum er speki, og langir lífdagar veita hyggindi.
13
Hjá Guði er speki og máttur, hans eru ráð og hyggindi.
14
Þegar hann rífur niður, þá verður eigi byggt upp aftur, þegar hann setur einhvern í fangelsi, þá verður ekki lokið upp.
15
Þegar hann stíflar vötnin, þá þorna þau upp, þegar hann hleypir þeim, þá umturna þau jörðinni.
16
Hjá honum er máttur og viska, á valdi hans er sá er villist, og sá er í villu leiðir.
17
Hann leiðir ráðherra burt nakta og gjörir dómara að fíflum.
18
Hann leysir fjötra konunganna og bindur reipi um lendar sjálfra þeirra.
19
Hann leiðir presta burt nakta og steypir þeim, sem sitja fastir í sessi.
20
Hann rænir reynda menn málinu og sviptir öldungana dómgreind.
21
Hann hellir fyrirlitning yfir tignarmennin og gjörir slakt belti hinna sterku.
22
Hann grefur hið hulda fram úr myrkrinu og dregur niðdimmuna fram í birtuna.
23
Hann veitir þjóðunum vöxt og eyðir þeim, útbreiðir þjóðirnar og leiðir þær burt.
24
Hann firrir þjóðhöfðingja landsins viti og lætur þá villast um veglaus öræfi.
25
Þeir fálma í ljóslausu myrkri, og hann lætur þá skjögra eins og drukkinn mann.
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 13 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
1981 Study Bible
→