bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Job 36
Job 36
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 35
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 37 →
1
Og Elíhú hélt áfram og sagði:
2
Haf þolinmæði við mig enn stutta stund, að ég megi fræða þig, því að enn má margt segja Guði til varnar.
3
Ég ætla að sækja þekking mína langar leiðir og sanna, að skapari minn hafi á réttu að standa.
4
Því að vissulega fer ég eigi með ósannindi, maður með fullkominni þekking stendur frammi fyrir þér.
5
Sjá, Guð er voldugur, þó fyrirlítur hann engan, voldugur að andans krafti.
6
Hann viðheldur ekki lífi hins óguðlega, en veitir hinum voluðu rétt þeirra.
7
Hann hefir ekki augun af hinum réttláta, og hjá konungum í hásætinu lætur hann þá sitja að eilífu, til þess að þeir séu hátt upp hafnir.
8
Og þótt þeir verði viðjum reyrðir, veiddir í snörur eymdarinnar,
9
og hann setur þeim fyrir sjónir gjörðir þeirra og afbrot þeirra að þeir breyttu drambsamlega,
10
og hann opnar eyru þeirra fyrir umvönduninni og segir að þeir skuli snúa sér frá ranglæti, -
11
ef þeir þá hlýða og þjóna honum, þá eyða þeir dögum sínum í velgengni og árum sínum í unaði.
12
En hlýði þeir ekki, þá farast þeir fyrir skotvopnum, gefa upp andann í vanhyggju sinni.
13
Því að vonskufullir í hjarta ala þeir með sér reiði, hrópa eigi á hjálp, þegar hann fjötrar þá.
14
Önd þeirra deyr í æskublóma og líf þeirra eins og hórsveina.
15
En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni.
16
Einnig þig ginnir hann út úr gini neyðarinnar út á víðlendi, þar sem engin þrengsli eru, og það sem kemur á borð þitt, er fullt af feiti.
17
En ef þú vinnur til dóms hins óguðlega, þá munu dómur og réttur hremma þig.
18
Lát því eigi reiðina ginna þig til spotts, og lát eigi stærð lausnargjaldsins tæla þig.
19
Mun hróp þitt koma þér úr nauðunum eða nokkur áreynsla krafta þinna?
20
Þráðu eigi nóttina, þá er þjóðir sópast burt af stöðvum sínum.
21
Gæt þín, snú þér eigi að ranglæti, því að það kýst þú heldur en að líða.
22
Sjá, Guð er háleitur í framkvæmdum máttar síns, hver er slíkur kennari sem hann?
23
Hver hefir fyrirskipað honum veg hans, og hver dirfist að segja: “Þú hefir gjört rangt”?
24
Minnstu þess, að þú vegsamir verk hans, það er mennirnir syngja um lofkvæði.
25
Allir menn horfa með fögnuði á það, dauðlegur maðurinn lítur það úr fjarska.
26
Já, Guð er mikill og vér þekkjum hann ekki, tala ára hans órannsakanleg.
27
Því að hann dregur upp vatnsdropana og lætur ýra úr þoku sinni,
28
regnið, sem skýin láta niður streyma, drjúpa yfir marga menn.
29
Og hver skilur útbreiðslu skýjanna og dunurnar í tjaldi hans?
30
Sjá, hann breiðir ljós sitt út kringum sig og hylur djúp hafsins.
31
Því að með því dæmir hann þjóðirnar, með því veitir hann fæðu í ríkum mæli.
32
Hendur sínar hylur hann ljósi og býður því út gegn fjandmanni sínum.
33
Þruma hans boðar komu hans, hans sem lætur reiði sína geisa gegn ranglætinu.
← Chapter 35
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 37 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
1981 Study Bible
→