bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Job 19
Job 19
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 20 →
1
Þá svaraði Job og sagði:
2
Hversu lengi ætlið þér að angra sál mína og mylja mig sundur með orðum?
3
Þér hafið þegar smánað mig tíu sinnum, þér skammist yðar ekki fyrir að misþyrma mér.
4
Og hafi mér í raun og veru orðið á, þá varðar það mig einan.
5
Ef þér í raun og veru ætlið að hrokast upp yfir mig, þá sannið mér svívirðing mína.
6
Kannist þó við, að Guð hafi hallað rétti mínum og umkringt mig með neti sínu.
7
Sjá, ég kalla: Ofbeldi! og fæ ekkert svar, ég kalla á hjálp, en engan rétt er að fá.
8
Guð hefir girt fyrir veg minn, svo að ég kemst ekki áfram, og stigu mína hylur hann myrkri.
9
Heiðri mínum hefir hann afklætt mig og tekið kórónuna af höfði mér.
10
Hann brýtur mig niður á allar hliðar, svo að ég fari burt, og slítur upp von mína eins og tré.
11
Hann lætur reiði sína bálast gegn mér og telur mig óvin sinn.
12
Skarar hans koma allir saman og leggja braut sína gegn mér og setja herbúðir sínar kringum tjald mitt.
13
Bræður mína hefir hann gjört mér fráhverfa, og vinir mínir vilja eigi framar við mér líta.
14
Skyldmenni mín láta ekki sjá sig, og kunningjar mínir hafa gleymt mér.
15
Skjólstæðingar húss míns og þernur mínar álíta mig aðkomumann, og ég er orðinn útlendingur í augum þeirra.
16
Kalli ég á þjón minn, svarar hann ekki, ég verð að sárbæna hann með munni mínum.
17
Andi minn er konu minni framandlegur, og bræður mínir forðast mig.
18
Jafnvel börnin fyrirlíta mig, standi ég upp, spotta þau mig.
19
Alla mína alúðarvini stuggar við mér, og þeir sem ég elskaði, hafa snúist á móti mér.
20
Bein mín límast við hörund mitt og hold, og ég hefi sloppið með tannholdið eitt.
21
Aumkið mig, aumkið mig, vinir mínir, því að hönd Guðs hefir lostið mig.
22
Hví ofsækið þér mig eins og Guð og verðið eigi saddir á holdi mínu?
23
Ó að orð mín væru skrifuð upp, ó að þau væru skráð í bók
24
með járnstíl og blýi, að eilífu höggvin í klett!
25
Ég veit, að lausnari minn lifir, og hann mun síðastur ganga fram á foldu.
26
Og eftir að þessi húð mín er sundurtætt og allt hold er af mér, mun ég líta Guð.
27
Ég mun líta hann mér til góðs, já, augu mín sjá hann, og það eigi sem andstæðing, - hjartað brennur af þrá í brjósti mér!
28
Þegar þér segið: “Vér skulum ofsækja hann, rót ógæfunnar er hjá honum sjálfum að finna!”
29
þá hræðist ógn sverðsins, því að sverðið er refsing syndar. Þá munuð þér komast að raun um, að til er dómur.
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 20 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
1981 Study Bible
→