bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Job 27
Job 27
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 26
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 28 →
1
Og Job hélt áfram að flytja ræðu sína og mælti:
2
Svo sannarlega sem Guð lifir, sá er svipt hefir mig rétti mínum, og hinn Almáttki, er hryggt hefir sálu mína:
3
meðan lífsönd er í mér og andi Guðs í nösum mínum,
4
skulu varir mínar ekki tala ranglæti og tunga mín ekki mæla svik.
5
Fjarri sé mér að játa, að þér hafið rétt að mæla. Þar til er ég gef upp andann, læt ég ekki taka frá mér sakleysi mitt.
6
Ég held fast í réttlæti mitt og sleppi því ekki, hjarta mitt átelur mig ekki fyrir neinn daga minna.
7
Fyrir óvini mínum fari eins og hinum óguðlega og fyrir mótstöðumanni mínum eins og hinum rangláta.
8
Því að hvaða von hefir guðlaus maður, þegar skorið er á þráðinn, þá er Guð hrífur burt líf hans?
9
Ætli Guð heyri óp hans, þá er neyð kemur yfir hann?
10
Eða getur hann haft yndi af hinum Almáttka, hrópað til Guðs, hvenær sem vera skal?
11
Ég vil fræða yður um hönd Guðs, eigi leyna því, er hinn Almáttki hefir í hyggju.
12
Sjá, þér hafið allir séð það sjálfir, hví farið þér þá með slíka heimsku?
13
Þetta er hlutskipti óguðlegs manns hjá Guði, arfleifð ofbeldismanns, sú er hann fær frá hinum Almáttka:
14
Eignist hann mörg börn, þá er það handa sverðinu, og afkvæmi hans mettast eigi af brauði.
15
Þeir af fólki hans er af komast, verða jarðaðir af drepsóttinni, og ekkjur þeirra halda engan harmagrát.
16
Þegar hann hrúgar saman silfri eins og sandi og hleður saman klæðum sem leir,
17
þá hleður hann þeim saman, en hinn réttláti klæðist þeim, og silfrinu deilir hinn saklausi.
18
Hann hefir byggt hús sitt eins og köngulló og svo sem skála, er varðmaður reisir sér.
19
Ríkur leggst hann til hvíldar - hann gjörir það eigi oftar, hann lýkur upp augunum, og þá er allt farið.
20
Skelfingar ná honum eins og vatnaflaumur, um nótt hrífur stormurinn hann burt.
21
Austanvindurinn hefur hann á loft, svo að hann þýtur áfram, og feykir honum burt af stað hans.
22
Vægðarlaust sendir hann skeyti sín á hann, fyrir hendi hans flýr hann í skyndi -
23
þá skella menn saman lófum yfir honum og blístra hann burt frá bústað hans.
← Chapter 26
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 28 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
1981 Study Bible
→