bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Job 39
Job 39
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 38
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 40 →
1
Veist þú tímann, nær steingeiturnar bera? Gefur þú gaum að fæðingarhríðum hindanna?
2
Telur þú mánuðina, sem þær ganga með, og veist þú tímann, nær þær bera?
3
Þær leggjast á knén, fæða kálfa sína, þær losna fljótt við kvalir sínar.
4
Kálfar þeirra verða sterkir, vaxa í haganum, fara burt og koma ekki aftur til þeirra.
5
Hver hefir látið skógarasnann ganga lausan og hver hefir leyst fjötra villiasnans,
6
sem ég hefi gefið eyðivelli að bústað og saltsléttu að heimkynni?
7
Hann hlær að hávaða borgarinnar, hann heyrir ekki köll rekstrarmannsins.
8
Það sem hann leitar uppi á fjöllunum, er haglendi hans, og öllu því sem grænt er, sækist hann eftir.
9
Mun vísundurinn vera fús til að þjóna þér eða mun hann standa um nætur við stall þinn?
10
Getur þú bundið vísundinn með bandinu við plógfarið eða mun hann herfa dalgrundirnar á eftir þér?
11
Reiðir þú þig á hann, af því að kraftur hans er mikill, og trúir þú honum fyrir arði þínum?
12
Treystir þú honum til að flytja sáð þitt heim og til að safna því á þreskivöll þinn?
13
Strúthænan baðar glaðlega vængjunum, en er nokkurt ástríki í þeim vængjum og flugfjöðrum?
14
Nei, hún fær jörðinni egg sín og lætur þau hitna í moldinni
15
og gleymir, að fótur getur brotið þau og dýr merkurinnar troðið þau sundur.
16
Hún er hörð við unga sína, eins og hún ætti þá ekki, þótt fyrirhöfn hennar sé árangurslaus, þá er hún laus við ótta,
17
því að Guð synjaði henni um visku og veitti henni enga hlutdeild í hyggindum.
18
En þegar hún sveiflar sér í loft upp, þá hlær hún að hestinum og þeim sem á honum situr.
19
Gefur þú hestinum styrkleika, klæðir þú makka hans flaksandi faxi?
20
Lætur þú hann stökkva eins og engisprettu? Fagurlega frýsar hann, en hræðilega!
21
Hann krafsar upp grundina og kætist af styrkleikanum, hann fer út á móti hertygjunum.
22
Hann hlær að hræðslunni og skelfist ekki og hopar ekki fyrir sverðinu.
23
Á baki hans glamrar í örvamælinum, spjót og lensa leiftra.
24
Með hávaða og harki hendist hann yfir jörðina og eigi verður honum haldið, þá er lúðurinn gellur.
25
Í hvert sinn er lúðurinn gellur, hvíar hann, og langar leiðir nasar hann bardagann, þrumurödd fyrirliðanna og herópið.
26
Er það fyrir þín hyggindi að haukurinn lyftir flugfjöðrunum, breiðir út vængi sína í suðurátt?
27
Er það eftir þinni skipun að örninn flýgur svo hátt og byggir hreiður sitt hátt uppi?
28
Á klettunum á hann sér býli og ból, á klettasnösum og fjallatindum.
29
Þaðan skyggnist hann að æti, augu hans sjá langar leiðir.
30
Og ungar hans svelgja blóð, og hvar sem vegnir menn liggja, þar er hann.
← Chapter 38
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 40 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42