bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Numbers 12
Numbers 12
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 13 →
1
Mirjam og Aron ávítuðu Móse vegna konunnar frá Kús sem hann hafði tekið sér fyrir eiginkonu.
2
Þau sögðu: „Hefur Drottinn aðeins talað við Móse, hefur hann ekki líka talað við okkur?“ Drottinn hlustaði á þetta.
3
En Móse var hógvær maður, hógværari en nokkur annar á jörðinni.
4
Skyndilega sagði Drottinn við Móse, Aron og Mirjam: „Farið öll þrjú út til samfundatjaldsins.“ Og þau fóru þangað öll þrjú.
5
Þá steig Drottinn niður í skýstólpa, tók sér stöðu við tjalddyrnar og kallaði á Aron og Mirjam. Þau gengu þá bæði fram
6
og hann sagði: Hlýðið á orð mín. Sé spámaður meðal yðar birtist ég honum í sýn, tala við hann í draumi.
7
Þannig fer ég ekki að við Móse, þjón minn, sem er trúað fyrir allri þjóð minni.
8
Ég tala við hann augliti til auglitis en ekki í gátum, hann fær að sjá mynd Drottins. Hvers vegna árædduð þið að ásaka þjón minn, Móse?
9
Reiði Drottins blossaði upp gegn þeim og hann gekk á brott.
10
Um leið og skýið vék burt frá tjaldinu var Mirjam orðin snjóhvít af holdsveiki. Aron sneri sér að Mirjam og sá að hún var orðin holdsveik.
11
Síðan sagði Aron við Móse: „Æ, herra minn. Láttu þá synd, sem við frömdum af heimsku, ekki koma niður á okkur.
12
Láttu hana ekki verða eins og andvana fóstur sem helmingur holdsins er rotnaður af þegar það kemur úr móðurlífi.“
13
Þá hrópaði Móse til Drottins og sagði: „Gerðu þetta ekki, læknaðu hana.“
14
En Drottinn sagði við Móse: „Hefði faðir hennar hrækt framan í hana þyrfti hún þá ekki að bera skömmina í sjö daga? Hún skal vera lokuð inni í sjö daga utan við herbúðirnar. Síðan getur hún komið inn aftur.“
15
Mirjam var því lokuð inni utan herbúðanna í sjö daga. Fólkið lagði ekki af stað fyrr en hún var aftur komin inn í herbúðirnar.
16
Síðan lagði þjóðin af stað frá Haserót og tjaldaði í Paraneyðimörk.
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 13 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36