bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Numbers 8
Numbers 8
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 9 →
1
Drottinn talaði til Móse og sagði:
2
„Talaðu við Aron og segðu við hann: Þegar þú setur upp lampana skulu þeir lýsa fram fyrir ljósastikuna allir sjö.“
3
Þetta gerði Aron. Hann setti lampana þannig upp að þeir lýstu fram fyrir ljósastikuna eins og Drottinn hafði boðið Móse.
4
Ljósastikan var gerð úr gulli með drifnu smíði. Bæði stétt hennar og blóm var drifið smíði. Móse hafði gert ljósastikuna eftir þeirri fyrirmynd sem Drottinn hafði sýnt honum.
5
Drottinn talaði til Móse og sagði:
6
„Greindu Levíta frá öðrum Ísraelsmönnum og hreinsaðu þá.
7
Þetta skaltu gera við þá til að hreinsa þá: Stökktu á þá vatni sem hreinsar þá af synd. Síðan skulu þeir raka allan líkama sinn, þvo klæði sín og hreinsa sig.
8
Því næst skulu þeir sækja ungneyti og þá kornfórn sem heyrir til, fínt mjöl, blandað olíu, til brennifórnar og annað naut til syndafórnar.
9
Þá skaltu láta Levítana ganga fram fyrir samfundatjaldið og stefna saman öllum söfnuði Ísraels.
10
Því næst skaltu láta Levítana ganga fram fyrir auglit Drottins og Ísraelsmenn skulu leggja hendur sínar yfir Levítana.
11
Aron skal vígja Levítana frammi fyrir augliti Drottins fyrir hönd Ísraelsmanna. Síðan skulu Levítarnir hefja þjónustu við Drottin.
12
Levítarnir skulu leggja hendur sínar á höfuð nautanna. Þá skaltu búa annað þeirra til syndafórnar en hitt til brennifórnar Drottni til handa til að friðþægja fyrir Levítana.
13
Þú skalt leiða Levítana fram fyrir Aron og syni hans og vígja þá frammi fyrir augliti Drottins.
14
Greindu þá frá öðrum Ísraelsmönnum, þannig verða Levítarnir mín eign.
15
Síðan skulu Levítarnir koma og gegna þjónustu við samfundatjaldið. Þú skalt hreinsa þá og vígja.
16
Af því að þeir voru greindir frá öðrum Ísraelsmönnum og fengnir mér að gjöf í stað þess sem opnar móðurlíf, í stað allra frumburða Ísraelsmanna, hef ég tekið þá mér til handa.
17
Því að allir frumburðir Ísraelsmanna eru mín eign, bæði frumburðir manna og dýra. Daginn, sem ég laust alla frumburði í Egyptalandi til bana, helgaði ég mér þá
18
og tók við Levítunum í stað allra frumburða Ísraelsmanna.
19
Ég greini Levíta frá öðrum Ísraelsmönnum og fæ þá Aroni og sonum hans að gjöf til að gegna þjónustu fyrir Ísraelsmenn í samfundatjaldinu, til þess að þeir friðþægi fyrir Ísraelsmenn svo að ekki komi plága yfir þá þegar þeir koma nærri helgidóminum.“
20
Móse, Aron og allur söfnuður Ísraelsmanna gerðu nákvæmlega allt það við Levítana sem Drottinn hafði boðið Móse.
21
Levítarnir hreinsuðu sig af synd og þvoðu klæði sín og Aron vígði þá frammi fyrir augliti Drottins. Þannig friðþægði Aron fyrir þá til að hreinsa þá.
22
Því næst komu Levítarnir og hófu störf sín við samfundatjaldið undir stjórn Arons og sona hans. Þeir gerðu nákvæmlega það sem Drottinn hafði boðið Móse.
23
Drottinn talaði til Móse og sagði:
24
„Þetta gildir um Levítana: Sérhver, sem er tuttugu og fimm ára eða eldri, skal koma til þjónustu og sinna störfum sínum við samfundatjaldið.
25
En þegar hann er orðinn fimmtugur skal hann hætta þjónustu og störfum við samfundatjaldið.
26
Hann má hjálpa bræðrum sínum við skyldustörf þeirra í samfundatjaldinu en ekki gegna neinni þjónustu. Þannig skaltu skipuleggja skyldustörf Levíta.“
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 9 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36