bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Numbers 25
Numbers 25
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 24
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 26 →
1
Meðan Ísrael dvaldi í Sittím tók þjóðin að hórast með móabískum konum.
2
Þær buðu fólkinu til fórnarmáltíða guða sinna og fólkið neytti og féll fram fyrir guðum þeirra.
3
Þannig tengdist Ísrael Baal Peór. Þá blossaði reiði Drottins upp gegn Ísrael
4
og Drottinn sagði við Móse: „Sæktu alla leiðtoga þjóðarinnar og hengdu þá upp frammi fyrir Drottni, gegnt sól svo að glóandi heift Drottins víki frá Ísrael.“
5
Þá sagði Móse við dómara Ísraels: „Sérhver lífláti nú þá af mönnum sínum sem tengst hafa Baal Peór.“
6
En einn Ísraelsmannanna kom til bræðra sinna og hafði með sér konu frá Midían. Hann leiddi hana fyrir Móse og allan söfnuð Ísraelsmanna þegar þeir grétu við inngang samfundatjaldsins.
7
Þegar Pínehas prestur, sonur Eleasar Aronssonar, sá þetta reis hann upp mitt í söfnuðinum, þreif spjót,
8
gekk á eftir Ísraelsmanninum inn í kvennatjaldið og rak þau bæði í gegn, Ísraelsmanninn og konuna frá Midían. Linnti þá plágunni meðal Ísraelsmanna.
9
En tuttugu og fjögur þúsund manns höfðu dáið úr plágunni.
10
Drottinn talaði til Móse og sagði:
11
„Pínehas prestur, sonur Eleasar Aronssonar, bægði reiði minni frá Ísraelsmönnum með afbrýðisemi vegna mín mitt á meðal þeirra. Þess vegna hef ég ekki gereytt Ísraelsmönnum í vandlætingu minni.
12
Því segi ég: Hér með gef ég honum friðarsáttmála minn.
13
Honum og niðjum hans skal gefið fyrirheit um ævarandi prestdóm því að hann var afbrýðisamur vegna Guðs síns og friðþægði þannig fyrir Ísraelsmenn.“
14
Ísraelsmaðurinn, sem var tekinn af lífi ásamt konunni frá Midían, hét Simrí Salúson. Hann var ættarhöfðingi meðal Símeoníta.
15
Konan frá Midían, sem var líflátin, hét Kosbí Súrsdóttir. Faðir hennar var ættarhöfðingi meðal Midíaníta.
16
Drottinn talaði til Móse og sagði:
17
„Gerðu árás á Midíaníta og dreptu þá
18
því að þeir réðust á ykkur með brögðum bæði í málinu vegna Baals Peór og löndu þeirra, Kosbí, sem var dóttir höfðingja í Midían. Hún var tekin af lífi daginn sem plágan vegna Peórs reið yfir.“
← Chapter 24
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 26 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36