bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Numbers 2
Numbers 2
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 3 →
1
Drottinn talaði til Móse og Arons og sagði:
2
„Sérhver skal tjalda hjá gunnfána sínum, undir merkjum fjölskyldu sinnar. Ísraelsmenn skulu tjalda gegnt samfundatjaldinu, hringinn í kringum það.
3
Búðir Júdasona skulu vera fremstar, austan megin, undir gunnfána sínum. Þar skulu hersveitir þeirra tjalda hver um sig. Foringi Júdasona er Nakson Ammínadabsson.
4
Í hersveit hans reyndust þeir sem taldir voru 74.600.
5
Næst honum skal ættbálkur Íssakars tjalda. Foringi sona Íssakars er Netanel Súarsson.
6
Í hersveit hans reyndust þeir sem taldir voru 54.400.
7
Því næst kemur ættbálkur Sebúlons og er Elíab Helónsson foringi Sebúlonssona.
8
Í hersveit hans reyndust þeir sem taldir voru 57.400.
9
Alls reyndust þeir sem taldir voru í herbúðum Júda 186.400 og var hver hersveit talin sérstaklega. Þeir skulu halda af stað fyrstir.
10
Búðir sona Rúbens skulu vera sunnan megin, undir gunnfána sínum. Þar skulu hersveitir þeirra tjalda hver fyrir sig. Foringi Rúbenssona er Elísúr Sedeúrsson.
11
Í hersveit hans reyndust þeir sem taldir voru 46.500.
12
Næst honum skal ættbálkur Símeons tjalda. Foringi sona Símeons er Selúmíel Súrísaddaísson.
13
Í hersveit hans reyndust þeir sem taldir voru 59.300.
14
Einnig ættbálkur Gaðs og er Eljasaf Degúelsson foringi Gaðssona.
15
Í hersveit hans reyndust þeir sem taldir voru 45.650.
16
Alls reyndust þeir sem taldir voru í herbúðum Rúbens 151.450 og var hver hersveit talin sérstaklega. Þeir skulu halda af stað aðrir í röðinni.
17
Því næst skal haldið af stað með samfundatjaldið ásamt búðum Levíta sem skulu vera mitt á meðal hinna búðanna. Haldið skal af stað með þær í sömu röð og þeim var slegið upp, hverri á sínum ákveðna stað, undir gunnfána sínum.
18
Búðir sona Efraíms skulu vera að vestanverðu, undir gunnfána sínum. Elísama Ammíhúdsson er foringi Efraímssona.
19
Í hersveit hans reyndust þeir sem taldir voru 40.500.
20
Næst honum skal ættbálkur sona Manasse tjalda og er Gamlíel Pedasúrsson foringi sona Manasse.
21
Í hersveit hans reyndust þeir sem taldir voru 32.200.
22
Því næst kemur ættbálkur Benjamíns og er Abídan Gídoníson foringi niðja Benjamíns.
23
Í hersveit hans reyndust þeir sem taldir voru 35.400.
24
Alls reyndust þeir sem taldir voru í herbúðum Efraíms vera 108.100, hver hersveit um sig. Þeir skulu halda næst af stað.
25
Búðir sona Dans skulu vera að norðanverðu. Akíeser Ammísaddaíson er foringi sona Dans.
26
Í hersveit hans reyndust þeir sem taldir voru 62.700.
27
Næst honum skal ættbálkur Assers tjalda og er Pagíel Ókransson foringi niðja Assers.
28
Í hersveit hans reyndust þeir sem taldir voru 41.500.
29
Því næst kemur ættbálkur Naftalí og er Akíra Enansson foringi sona Naftalí.
30
Í hersveit hans reyndust þeir sem taldir voru 53.400.
31
Alls reyndust þeir sem taldir voru í herbúðum Dans vera 157.600. Þeir skulu halda síðastir af stað undir gunnfánum sínum.“
32
Þetta eru þeir Ísraelsmenn sem taldir voru eftir fjölskyldum sínum. Alls reyndust þeir sem taldir voru eftir herbúðum og hersveitum sínum vera 603.550.
33
En Levítar voru ekki taldir ásamt öðrum Ísraelsmönnum. Drottinn hafði boðið Móse að gera það ekki.
34
Ísraelsmenn gerðu allt það sem Drottinn hafði boðið Móse: Þeir settu búðir sínar við gunnfána sína og héldu af stað hver í sínum ættbálki með fjölskyldu sinni.
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 3 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36