bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Numbers 30
Numbers 30
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 29
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 31 →
1
Móse skýrði Ísraelsmönnum frá þessu eins og Drottinn hafði boðið.
2
Móse talaði til leiðtoga ættbálka Ísraels og sagði: „Þetta er það sem Drottinn hefur boðið:
3
Nú vinnur maður Drottni heit eða skuldbindur sig með eiði að neita sér um eitthvað og skal hann ekki hvika frá loforði sínu, hann skal í einu og öllu standa við það sem hann sagði.
4
Vinni ung kona, sem er ógefin í föðurhúsum, Drottni heit eða skuldbindi sig með eiði að neita sér um eitthvað
5
og faðir hennar heyrir um heit hennar eða skuldbindingu og segir ekkert við hana, skulu öll heit hennar og allar skuldbindingar standa.
6
En komi faðir hennar með mótbárur gegn henni daginn sem hann heyrir um einhver heit hennar eða skuldbindingar standa þau ekki. Drottinn mun fyrirgefa henni því að faðir hennar kom með mótbárur gegn henni.
7
En verði hún gefin manni og heit hennar hvíla á henni eða hún hefur skuldbundið sig með gálausu tali
8
og maður hennar heyrir um það en segir ekkert við hana daginn, sem hann heyrir það, skulu heit hennar og skuldbindingar standa.
9
En komi maður hennar með mótbárur gegn henni daginn sem hann heyrir um þetta og hann rýfur heitið, sem hvílir á henni eða ómerkir gálausar skuldbindingar hennar, mun Drottinn fyrirgefa henni.
10
Heit ekkju eða fráskilinnar konu stendur, sem og allt annað sem hún hefur skuldbundið sjálfa sig með.
11
Hafi hún unnið heit í húsi manns síns eða skuldbundið sjálfa sig með eiði heima hjá manni sínum
12
og maður hennar heyrir um það en segir ekkert við hana eða kemur ekki með neinar mótbárur, skulu öll heit hennar og standa.
13
En ef hann rýfur þau daginn sem hann heyrir um þau stendur ekkert sem hún hefur sagt um heit sín eða skuldbindingu sjálfrar sín. Maður hennar hefur rofið þau og Drottinn mun fyrirgefa henni.
14
Maður hennar getur samþykkt eða rofið sérhvert heit hennar og sérhverja skuldbindingu.
15
Þegi maður hennar um þau dag eftir dag samþykkir hann öll heit hennar og skuldbindingar sem á henni hvíla. Hann hefur samþykkt þær því að hann þagði frá þeim degi er hann heyrði um þær.
16
Ef hann rýfur þær eftir að hafa heyrt um þær skal hann taka á sig sekt hennar.“
17
Þetta eru lagaákvæði sem Drottinn lagði fyrir Móse um samband eiginmanns og eiginkonu og milli föður og ógefinnar dóttur í föðurgarði.
← Chapter 29
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 31 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36