bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Numbers 27
Numbers 27
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 26
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 28 →
1
Dætur Selofhaðs gengu nú fram. Selofhað var sonur Hefers Gíleaðssonar, Makírssonar, Manassesonar, af ættum Manasse, sonar Jósefs. Dætur hans hétu Mahla, Nóa, Hogla, Milka og Tirsa.
2
Þær gengu fram fyrir Móse og Eleasar prest, höfðingjana og allan söfnuðinn við dyr samfundatjaldsins og sögðu:
3
„Faðir okkar dó í eyðimörkinni. Samt var hann ekki í söfnuðinum sem gerði samblástur gegn Drottni, í söfnuði Kóra, heldur dó hann vegna eigin syndar án þess að hafa eignast syni.
4
Hvers vegna verður nafn föður okkar nú afmáð úr ætt hans af því að hann eignaðist engan son? Fáðu okkur því landareign meðal föðurbræðra okkar.“
5
Móse lagði mál þeirra fyrir Drottin
6
og Drottinn svaraði Móse og sagði:
7
„Dætur Selofhaðs hafa á réttu að standa. Fáðu þeim landareign, erfðaland, meðal föðurbræðra sinna og láttu óðal föður þeirra ganga til þeirra.
8
Þú skalt ávarpa Ísraelsmenn og segja: Þegar maður deyr án þess að eiga son skal óðal hans ganga til dóttur hans.
9
Eigi hann enga dóttur skuluð þið fá bræðrum hans erfðaland hans.
10
En eigi hann enga bræður skuluð þið fá föðurbræðrum hans erfðaland hans.
11
Eigi hann enga föðurbræður skuluð þið fá erfðaland hans nánasta skyldmenni hans í ætt hans og skal ættinginn taka landið til eignar. Þetta skal verða lagaákvæði í Ísrael eins og Drottinn hefur boðið Móse.“
12
Drottinn sagði við Móse: „Farðu hér upp á Abarímfjall og horfðu yfir landið sem ég hef gefið Ísraelsmönnum.
13
Þegar þú hefur horft yfir það muntu safnast til feðra þinna eins og Aron, bróðir þinn,
14
því að þið risuð gegn boði mínu í Síneyðimörk þegar söfnuðurinn gerði uppreisn og þið áttuð að birta heilagleika minn með vatninu fyrir augum þeirra.“ Það var Meríbavatn við Kades í Síneyðimörk.
15
En Móse ávarpaði Drottin og sagði:
16
„Drottinn Guð, sem gæðir allt hold lífi, ætti að skipa mann yfir söfnuðinn,
17
mann sem fer fyrir þeim út og inn aftur, leiðir þá heiman og heim svo að söfnuður Drottins verði ekki eins og hjörð án hirðis.“
18
Drottinn sagði við Móse: „Sæktu Jósúa Núnsson, mann sem andi er í, og leggðu hönd þína yfir hann.
19
Leiddu hann síðan fram fyrir Eleasar prest og allan söfnuðinn og gefðu honum fyrirmæli.
20
Veittu honum nokkuð af valdi þínu svo að allur söfnuður Ísraels hlýði honum.
21
Hann skal ganga fyrir Eleasar prest og biðja hann um úrskurði með úrím fyrir augliti Drottins.“
22
Móse gerði það sem Drottinn hafði boðið honum. Hann sótti Jósúa og leiddi hann fram fyrir Eleasar prest og allan söfnuðinn,
23
lagði hönd sína yfir hann og gaf honum fyrirmæli eins og Drottinn hafði boðið fyrir munn Móse.
← Chapter 26
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 28 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36