bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Numbers 24
Numbers 24
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 23
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 25 →
1
Þegar Bíleam skildi að það var Drottni þóknanlegt að blessa Ísrael vék hann ekki afsíðis til að leita spáfregna eins og fyrri skiptin, heldur sneri hann í átt til eyðimerkurinnar.
2
Þegar Bíleam leit upp sá hann Ísrael sem hafði sest að eftir ættbálkum. Þá kom andi Guðs yfir hann
3
og hann tók að flytja boðskap sinn og sagði: Svo segir Bíleam Beórsson, svo segir maður með lokuð augu,
4
svo segir sá sem heyrir orð Guðs, sem sér það sem Alvaldur birtir, hann liggur með opin augu.
5
Hve fögur eru tjöld þín, Jakob, bústaðir þínir, Ísrael.
6
Þeir eru breiddir út sem árkvíslir, eins og trjágarðar á fljótsbakka, eins og eik gróðursett af Drottni, sedrustré við vatn.
7
Vatn flýtur úr fötu hans og útsæði hans er baðað í vatni. Konungur hans er voldugri en Agag og konungsvald hans eflist.
8
Guð leiddi hann út úr Egyptalandi, hann ber horn sem villinaut, gleypir þjóðir sem þrengja að honum, molar bein þeirra og brýtur örvar þeirra.
9
Hann bælir sig, leggst eins og ljón, ungt ljón, hver rekur það á fætur? Blessaður sé hver sem blessar þig, bölvaður hver sem bölvar þér.
10
Reiði Balaks blossaði nú upp gegn Bíleam, hann sló saman lófum og sagði við hann: „Ég sótti þig til að bölva fjandmönnum mínum en þú hefur blessað þá þrisvar.
11
Farðu nú heim til þín. Ég lofaði þér miklum launum en Drottinn kom í veg fyrir það.“
12
Þá sagði Bíleam við Balak: „Sagði ég ekki við mennina sem þú sendir til mín:
13
Þó að Balak gæfi mér hús sitt fullt af silfri og gulli gæti ég ekki gengið gegn boðum Drottins og gert gott eða illt að eigin geðþótta. Ég hlýt að segja það eitt sem Drottinn býður.
14
En nú ætla ég að fara heim til þjóðar minnar. Samt ætla ég að skýra þér frá því hvernig þessi þjóð mun fara með þjóð þína þegar fram líða stundir.“
15
Hann tók að flytja boðskap sinn og sagði: Svo segir Bíleam Beórsson, svo segir maður með lokað auga,
16
svo segir sá sem heyrir orð Guðs, sem sér það sem Alvaldur birtir og hefur hnigið niður með opin augu.
17
Ég sé hann, en ekki nú, horfi á hann, samt er hann ekki nærri. Stjarna rís upp frá Jakobi, veldissproti hefst upp í Ísrael sem merja mun gagnaugu Móabs og hvirfil allra sona Sets.
18
Edóm verður tekinn til eignar og Seír, fjandmaður hans, verður einnig tekinn til eignar en Ísrael eflist
19
og Jakob mun ríkja. Hann mun eyða þeim sem komust undan frá borginni.
20
Þegar hann sá Amalek flutti hann boðskap sinn og sagði: Amalek var fremstur þjóða en fellur í valinn að lokum.
21
Þegar hann sá Keníta flutti hann boðskap sinn og sagði: Dvalarstaður þinn er traustur, hreiður þitt gert á kletti,
22
samt verður því eytt. Hve langt er þar til Assúr flytur þig burt sem fanga, Kain?
23
Hann tók enn að flytja boðskap sinn og sagði: Vei! Hverjir flykkjast að úr norðri?
24
Skip koma frá Kittum, þau munu niðurlægja Assúr, niðurlægja Eber en hann mun einnig farast að lokum.
25
Síðan hélt Bíleam af stað og fór aftur heim til sín. Balak fór einnig leiðar sinnar.
← Chapter 23
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 25 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36