bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Numbers 19
Numbers 19
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 20 →
1
Drottinn talaði til Móse og Arons og sagði:
2
„Þetta er lagaákvæði sem Drottinn hefur sett: Segðu Ísraelsmönnum að færa þér gallalausa, rauða kú án lýta sem enn hefur ekki borið ok.
3
Þið skuluð fá hana Eleasar presti. Farið skal með hana út fyrir herbúðirnar og henni slátrað frammi fyrir honum.
4
Þá skal Eleasar taka nokkuð af blóði hennar með fingri sínum og stökkva því sjö sinnum að framhlið samfundatjaldsins.
5
Síðan skal brenna kúna í augsýn hans. Húðin, kjötið, blóðið og gorið skal brennt.
6
Þá skal presturinn taka sedrusvið, ísóp og skarlatsrautt band og kasta því á bálið sem kýrin er brennd á.
7
Því næst skal presturinn þvo klæði sín og lauga líkama sinn í vatni og má þá ganga inn í herbúðirnar en hann er þó óhreinn til kvölds.
8
Sá sem brenndi kúna skal einnig þvo klæði sín og lauga líkama sinn í vatni og er hann einnig óhreinn til kvölds.
9
Hreinn maður skal síðan safna öskunni saman og koma henni fyrir á hreinum stað utan við herbúðirnar. Söfnuður Ísraels skal varðveita hana svo að hægt verði að hafa hana í syndahreinsunarvatni.
10
En sá sem safnaði saman ösku kýrinnar skal þvo klæði sín og er óhreinn til kvölds. Þetta skal vera ævarandi regla fyrir Ísraelsmenn og aðkomumanninn sem hlýtur hæli á meðal þeirra.
11
Sérhver, sem snertir lík manns, verður óhreinn í sjö daga.
12
Hann skal hreinsa sig af synd á þriðja og sjöunda degi og verður þá hreinn. En ef hann hreinsar sig ekki af synd verður hann ekki hreinn.
13
Sérhver, sem snertir lík, líkama látins manns, án þess að hreinsa sig af synd, saurgar með því bústað Drottins. Sá maður skal upprættur úr Ísrael af því að hreinsunarvatni hefur ekki verið stökkt á hann. Hann er óhreinn, saurgun hans loðir við hann áfram.
14
Þetta eru lagaákvæði: Þegar maður deyr í tjaldi verður hver sem kemur inn í tjaldið og hver sem í tjaldinu er óhreinn í sjö daga.
15
Sérhvert opið ílát, sem lok er ekki bundið á, er óhreint.
16
Hver, sem snertir einhvern sem hefur verið veginn með sverði úti á víðavangi eða einhvern látinn mann, mannabein eða gröf, verður óhreinn í sjö daga.
17
Fyrir þann sem hefur saurgast skal taka nokkuð af ösku syndafórnar sem hefur verið brennd, láta hana í ílát og hella fersku vatni yfir.
18
Síðan skal hreinn maður taka ísóp og dýfa í vatnið og stökkva því á tjaldið, á öll ílát og það fólk sem er í tjaldinu eða þann sem hefur snert mannabein, veginn mann, látinn mann eða gröf.
19
Sá hreini skal stökkva vatninu á þann óhreina á þriðja og sjöunda degi og hreinsa hann af synd á þeim sjöunda. Síðan skal hann þvo klæði sín og lauga sig í vatni og er hann þá hreinn að kvöldi.
20
Ef maður saurgast og hreinsar sig ekki af synd skal hann upprættur úr söfnuðinum því að hann hefur saurgað helgidóm Drottins, hreinsunarvatni hefur ekki verið stökkt á hann, hann er saurugur.
21
Þetta skal vera ykkur ævarandi regla. Sá sem stökkvir hreinsunarvatni skal einnig þvo klæði sín og sá sem snertir hreinsunarvatnið verður saurugur til kvölds.
22
Allt, sem sá saurugi snertir, er saurugt og sérhver maður, sem snertir hann, verður óhreinn til kvölds.“
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 20 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36