bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Numbers 28
Numbers 28
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 27
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 29 →
1
Drottinn talaði til Móse og sagði:
2
„Gefðu Ísraelsmönnum fyrirmæli og segðu við þá: Þið skuluð gæta þess að færa mér fórnargjafir á tilteknum tíma, mat handa mér, til þægilegs ilms.
3
Þú skalt segja við þá: Þetta er eldfórn sem þið skuluð færa Drottni: tvær veturgamlar, lýtalausar ær daglega í brennifórn.
4
Annað lambið skaltu búa til fórnar að morgni en hitt lambið skaltu búa til fórnar í rökkrinu áður en dimmt er orðið.
5
Að auki skal færa einn tíunda hluta úr efu af fínu mjöli í kornfórn, blönduðu olíu úr steyttum ólífum.
6
Þetta er dagleg brennifórn sem var færð á Sínaí, þekkur ilmur, eldfórn handa Drottni.
7
Dreypifórnin, sem heyrir til, er fjórðungur hínar með hverju lambi. Í helgidóminum skaltu færa Drottni áfengan drykk sem dreypifórn.
8
Þú skalt búa seinna lambið til fórnar í rökkrinu áður en dimmt er orðið. Þú skalt færa það að fórn með sömu kornfórn og sömu dreypifórn sem um morguninn sem eldfórn Drottni til þægilegs ilms.
9
Hvíldardaginn skaltu búa tvær veturgamlar, lýtalausar ær til fórnar, að auki tvo tíundu hluta af fínu mjöli, blönduðu olíu, ásamt þeirri dreypifórn sem heyrir til.
10
Þetta er brennifórn sem skal færa á hverjum hvíldardegi auk hinnar síendurteknu brennifórnar ásamt þeirri dreypifórn sem heyrir til.
11
Við upphaf hvers mánaðar skuluð þið færa Drottni í brennifórn tvö naut, einn hrút og sjö veturgömul lömb.
12
Með hverju nauti skuluð þið færa í kornfórn þrjá tíundu hluta úr efu af fínu mjöli, blönduðu olíu, og tvo tíundu hluta af fínu mjöli, blönduðu olíu, með hverjum hrút
13
og einn tíunda hluta af fínu mjöli, blönduðu olíu, með hverju lambi. Þetta er brennifórn, þekkur ilmur, eldfórn handa Drottni.
14
Dreypifórnirnar, sem heyra til, skulu vera hálf hín af víni með nauti, þriðjungur úr hín með hrút og fjórðungur úr hín með lambi. Þetta er brennifórn nýs tungls sem færa skal við nýtt tungl í hverjum mánuði ársins.
15
Enn fremur skal færa Drottni einn geithafur í syndafórn auk hinnar síendurteknu brennifórnar ásamt þeirri dreypifórn sem heyrir til.
16
Fjórtánda dag fyrsta mánaðarins eru páskar Drottins.
17
Fimmtánda dag þess mánaðar er hátíð. Sjö daga skal neyta ósýrðs brauðs.
18
Fyrsta daginn er helg samkoma. Þá skuluð þið ekkert starfa.
19
Þið skuluð færa tvö naut, einn hrút og sjö veturgömul lömb, lýtalaus dýr, í eldfórn, brennifórn handa Drottni.
20
Með hverju nauti skuluð þið færa þrjá tíundu hluta úr efu af fínu mjöli, blönduðu olíu, og tvo tíundu með hverjum hrút.
21
Með hverju hinna sjö lamba skaltu færa einn tíunda hluta af fínu mjöli
22
og einn geithafur í syndafórn til að friðþægja fyrir ykkur.
23
Þetta skuluð þið búa til fórnar auk brennifórnarinnar að morgni sem er þáttur í hinni síendurteknu brennifórn.
24
Þessa brennifórn skuluð þið færa á hverjum degi í sjö daga sem mat, eldfórn, þekkan ilm handa Drottni. Hún skal færð auk hinnar daglegu fórnar og dreypifórnarinnar sem henni heyrir til.
25
Sjöunda daginn skuluð þið halda helga samkomu. Þann dag skuluð þið ekkert starfa.
26
Á degi frumgróðans, þegar þið færið Drottni kornfórn af nýrri uppskeru á viknahátíð ykkar, skuluð þið halda heilaga samkomu. Þið megið ekkert starfa.
27
Þið skuluð færa tvö naut, einn hrút og sjö veturgömul lömb í brennifórn sem þekkan ilm handa Drottni.
28
Enn fremur þá kornfórn sem heyrir til, fínt mjöl, blandað olíu, þrjá tíundu hluta úr efu með hverju nauti, tvo tíundu með hverjum hrút,
29
einn tíunda með hverju þessara sjö lamba
30
og að auki einn geithafur til að friðþægja fyrir ykkur.
31
Þið skuluð færa þessar fórnir auk hinnar reglulegu fórnar ásamt þeirri kornfórn sem henni heyrir til. Fórnardýrin skulu vera lýtalaus og þið skuluð færa með þeim þær dreypifórnir sem heyra til.
← Chapter 27
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 29 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36