bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Genesis 1
Genesis 1
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 2 →
1
Í upphafi skapaði Guð himin og jörð.
2
Jörðin var þá auð og tóm. Myrkur grúfði yfir djúpinu en andi Guðs sveif yfir vötnunum.
3
Þá sagði Guð: „Verði ljós.“ Og það varð ljós.
4
Guð sá að ljósið var gott og Guð greindi ljósið frá myrkrinu.
5
Guð nefndi ljósið dag en myrkrið nótt. Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn fyrsti dagur.
6
Þá sagði Guð: „Verði festing milli vatnanna og hún greini vötn frá vötnum.“
7
Þá gerði Guð festinguna. Skildi hún milli vatnanna sem voru undir festingunni og vatnanna sem voru yfir festingunni. Og það varð svo.
8
Og Guð nefndi festinguna himin Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn annar dagur.
9
Þá sagði Guð: „Vötnin undir himninum safnist saman í einn stað og þurrlendið komi í ljós.“ Og það varð svo.
10
Guð nefndi þurrlendið jörð og safn vatnanna nefndi hann haf. Og Guð sá að það var gott.
11
Þá sagði Guð: „Jörðin láti gróður af sér spretta, sáðjurtir og aldintré af öllum tegundum jarðar sem bera ávöxt með sæði.“ Og það varð svo.
12
Jörðin lét gróður af sér spretta, alls kyns sáðjurtir og aldintré af öllum tegundum sem bera ávöxt með fræi. Og Guð sá að það var gott.
13
Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn þriðji dagur.
14
Þá sagði Guð: „Verði ljós á hvelfingu himins til þess að greina dag frá nóttu. Þau skulu vera tákn til þess að marka tíðir, daga og ár
15
og þau skulu vera ljósgjafar á festingu himins til þess að bera jörðinni birtu.“ Og það varð svo.
16
Guð gerði tvö stóru ljósin, stærra ljósið til að ráða degi og minna ljósið til að ráða nóttu, og einnig stjörnurnar.
17
Og Guð setti þau á festingu himinsins til þess að bera jörðinni birtu
18
og ráða degi og nóttu og til að greina ljós frá myrkri. Og Guð sá að það var gott.
19
Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn fjórði dagur.
20
Þá sagði Guð: „Vötnin verði kvik af lífverum og fuglar fljúgi yfir jörðinni undir hvelfingu himins.“
21
Og Guð skapaði hin stóru sjávardýr og alls kyns skepnur, sem lifa og hrærast og vötnin eru kvik af, og alla fleyga fugla eftir þeirra tegundum. Og Guð sá að það var gott.
22
Guð blessaði þau og sagði: „Frjóvgist og fjölgið ykkur og fyllið vötn sjávarins og fuglum fjölgi á jörðinni.“
23
Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn fimmti dagur.
24
Þá sagði Guð: „Jörðin leiði fram lifandi skepnur, hverja eftir sinni tegund, búfé, skriðdýr og villidýr, hvert eftir sinni tegund.“ Og það varð svo.
25
Guð gerði villidýrin, hvert eftir sinni tegund, búfé eftir sinni tegund og hvers konar skriðdýr jarðarinnar eftir sinni tegund. Og Guð sá að það var gott.
26
Þá sagði Guð: „Vér viljum gera manninn eftir vorri mynd, líkan oss. Hann skal drottna yfir fiskum sjávarins, fuglum loftsins, búfénu, villidýrunum og allri jörðinni og öllum skriðdýrum sem skríða á jörðinni.“
27
Og Guð skapaði manninn eftir sinni mynd. Hann skapaði hann eftir Guðs mynd. Hann skapaði þau karl og konu.
28
Guð blessaði þau. Og Guð sagði við þau: „Verið frjósöm, fjölgið ykkur og fyllið jörðina, gerið ykkur hana undirgefna og ríkið yfir fiskum sjávarins og fuglum himinsins og öllum dýrum sem hrærast á jörðinni.“
29
Og Guð sagði: „Nú gef ég ykkur allar sáðjurtir jarðarinnar og öll aldintré sem bera ávöxt með fræi. Þau skulu vera ykkur til fæðu.
30
Og öllum dýrum jarðarinnar, öllum fuglum himinsins, öllum skriðdýrum jarðarinnar, öllu sem hefur lífsanda í sér, gef ég öll grös og jurtir til fæðu.“ Og það varð svo.
31
Og Guð leit allt sem hann hafði gert, og sjá, það var harla gott. Og það varð kvöld og það varð morgunn, hinn sjötti dagur.
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 2 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50