bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Genesis 33
Genesis 33
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 32
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 34 →
1
Jakob leit upp og sá Esaú koma með fjögur hundruð manns. Skipti hann þá börnunum niður á Leu og Rakel og báðar ambáttirnar.
2
Hann lét ambáttirnar og börn þeirra vera fremst, þá Leu og börn hennar en Rakel og Jósef aftast.
3
Sjálfur gekk hann á undan þeim. Hann beygði sig sjö sinnum til jarðar er hann gekk til móts við bróður sinn.
4
Esaú hljóp á móti honum og faðmaði hann, lagði hendur um háls honum og kyssti hann og þeir grétu.
5
Þegar Esaú sá konurnar og börnin spurði hann: „Hvaða fólk er þetta sem með þér er?“ Hann svaraði: „Það eru börnin sem Guð hefur í náð sinni gefið þjóni þínum.“
6
Þá gengu ambáttirnar fram ásamt börnum sínum og hneigðu sig.
7
Síðan gekk Lea fram og hneigði sig ásamt börnum sínum. Loks gengu Jósef og Rakel fram og hneigðu sig.
8
Þá spurði Esaú: „Hvað hyggstu fyrir með þessa fylkingu sem ég mætti?“ Jakob svaraði: „Að finna náð í augum herra míns.“
9
„Ég á nóg, bróðir,“ sagði Esaú. „Eigðu það sem þitt er.“
10
„Nei,“ sagði Jakob, „hafi ég fundið náð í augum þínum þiggðu þá gjöfina af mér. Þegar ég sá auglit þitt var sem ég sæi auglit Guðs og þú hefur tekið vel á móti mér.
11
Ég bið þig að þiggja gjöfina sem þér var færð því að Guð hefur verið mér góður og ég hef allt sem ég þarfnast.“ Jakob lagði að honum þar til hann þáði gjöfina.
12
Esaú sagði: „Leggjum nú af stað og höldum áfram. Ég skal fara á undan þér.“
13
Hann svaraði: „Herra minn veit að börnin eru lítil og ég verð að taka tillit til þess að með í för eru lambær og kýr með kálfum. Ræki ég þær of hart einn dag mundi öll hjörðin týna lífi.
14
Þess vegna bið ég þig, herra, að þú farir á undan þjóni þínum. Þá get ég komið á eftir þér til Seír, herra minn, á þeim hraða sem hentar fénaðinum og börnunum.“
15
Esaú sagði: „Þá vil ég að minnsta kosti skilja nokkra af mönnum mínum eftir hjá þér.“ Jakob svaraði: „Þess gerist engin þörf, finni ég aðeins náð í augum herra míns.“
16
Sama dag sneri Esaú aftur til Seír.
17
En Jakob hélt til Súkkót. Þar byggði hann sér hús og reisti laufskála handa fénaði sínum. Þess vegna var staðurinn nefndur Súkkót.
18
Jakob kom heill á húfi til Síkemborgar í Kanaanslandi á leið sinni frá Mesópótamíu og sló upp tjöldum sínum fyrir utan borgina.
19
Akurinn, þar sem hann hafði slegið upp tjaldi sínu, keypti hann af sonum Hemors, föður Síkems, fyrir hundrað kesíta.
20
Þar reisti hann altari sem hann nefndi El-elóhe-Ísrael.
← Chapter 32
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 34 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50