bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Genesis 39
Genesis 39
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 38
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 40 →
1
Jósef var fluttur til Egyptalands þar sem Pótífar, egypskur hirðmaður faraós og lífvarðarforingi, keypti hann af Ísmaelítunum sem fluttu hann þangað.
2
En Drottinn var með Jósef svo að hann varð lánsamur. Hann dvaldist í húsi hins egypska húsbónda síns.
3
Þegar húsbónda hans varð ljóst að Drottinn var með honum og að Drottinn lét honum heppnast allt sem hann tók sér fyrir hendur,
4
þá fann Jósef náð í augum hans og þjónaði honum. Hann setti Jósef yfir hús sitt og trúði honum fyrir öllu sem hann átti.
5
Frá þeirri stundu, er hann hafði sett Jósef yfir hús sitt og yfir allt sem hann átti, blessaði Drottinn hús hins egypska manns vegna Jósefs. Hvíldi blessun Drottins yfir öllu sem hann átti, innan húss og utan.
6
Pótífar fól Jósef til umráða allar eigur sínar og lét sig ekki varða um annað en matinn sem hann neytti. Jósef var vel vaxinn og fríður sýnum.
7
Þar kom að kona húsbónda hans renndi hýru auga til hans og sagði: „Leggstu með mér!“
8
Jósef færðist undan og sagði við hana: „Húsbóndi minn lætur sig ekki varða um neitt í húsinu undir minni stjórn og hefur trúað mér fyrir öllum eigum sínum.
9
Hann hefur ekki meira vald í þessu húsi en ég og hann neitar mér ekki um neitt nema þig vegna þess að þú ert kona hans. Hvers vegna skyldi ég þá aðhafast svo illt og syndga á móti Guði?“
10
Þó að hún reyndi að tala Jósef til dag eftir dag þá lét hann ekki að vilja hennar að leggjast hjá henni og vera með henni.
11
Dag einn er hann gekk til vinnu sinnar inn í húsið og enginn heimilismanna var þar inni
12
greip hún í skikkju hans og sagði: „Leggstu með mér!“ Hann skildi skikkjuna eftir í hendi hennar og lagði á flótta út.
13
Þegar hún sá að hann hafði látið eftir skikkjuna í hendi hennar og var flúinn út
14
þá kallaði hún á heimafólk sitt og sagði: „Sjáið, hann hefur fært okkur hebreskan mann sem skemmtir sér á kostnað okkar. Hann kom inn til mín og vildi leggjast með mér en ég æpti hástöfum.
15
Þegar hann heyrði hróp mín og köll lét hann skikkju sína eftir hjá mér og lagði á flótta.“
16
Hún geymdi skikkju hans þangað til húsbóndi hans kom heim.
17
Þá endurtók hún sögu sína og sagði: „Hebreski þrællinn, sem þú færðir okkur, kom til mín til þess að gamna sér.
18
En þegar ég hrópaði og kallaði skildi hann skikkju sína eftir hjá mér og lagði á flótta.“
19
Er húsbóndi hans heyrði konu sína skýra frá hvernig þræll hans hafði komið fram við hana reiddist hann mjög.
20
Lét húsbóndinn taka Jósef og setja hann í fangelsið þar sem fangar konungs voru geymdir. Þar var hann hafður í haldi.
21
En Drottinn var með Jósef, auðsýndi honum miskunn og lét hann finna náð í augum fangelsisstjórans
22
sem setti Jósef yfir alla hina fangana og gerði hann ábyrgan fyrir allri vinnu í fangelsinu.
23
Fangelsisstjórinn þurfti ekki að skipta sér af neinu sem Jósef var trúað fyrir því að Drottinn var með honum. Allt sem hann tók sér fyrir hendur lét Drottinn lánast honum.
← Chapter 38
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 40 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50