bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Genesis 9
Genesis 9
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 8
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 10 →
1
Guð blessaði Nóa og syni hans og sagði við þá: „Verið frjósamir, fjölgið ykkur og fyllið jörðina.
2
Öll dýr jarðarinnar, allir fuglar loftsins, allt kvikt á jörðinni og allir fiskar sjávarins skulu óttast ykkur og hræðast. Á ykkar vald er þetta gefið.
3
Allt sem hrærist og lifir skal vera ykkur til fæðu eins og var um grænu grösin en nú gef ég ykkur allt.
4
En kjöts sem líf er enn í, það er blóðið, skuluð þið ekki neyta.
5
Ég mun krefjast reikningsskapar fyrir blóð ykkar, líf ykkar, ég mun krefjast þess af sérhverri skepnu. Úr hendi manns mun ég krefjast reikningsskapar fyrir líf mannsins, af hverjum manni fyrir líf bróður hans.
6
Hver sem úthellir blóði manns, hans blóði skal og úthellt verða af manni, því að í mynd sinni skapaði Guð manninn.
7
Verið frjósöm, fjölgið ykkur, verið fjölmenn á jörðinni og margfaldist á henni.“
8
Guð sagði við Nóa og syni hans sem með honum voru:
9
„Ég stofna nú til sáttmála við ykkur og niðja ykkar
10
og allar lifandi skepnur sem með ykkur eru, bæði við fugla, búfé og öll dýr merkurinnar með ykkur, við allt sem út úr örkinni gekk, það er öll dýr merkurinnar.
11
Ég stofna til sáttmála við ykkur: Aldrei framar skal allt hold tortímast í vatnsflóði. Aldrei framar mun flóð koma og eyða jörðina.“
12
Og Guð sagði: „Þetta er tákn sáttmálans fyrir allar ókomnar aldir sem ég stofna til milli mín og ykkar og allra lifandi skepna sem hjá ykkur eru.
13
Boga minn hef ég sett í skýin. Hann skal vera tákn sáttmálans milli mín og jarðarinnar.
14
Þegar ég færi ský yfir jörðina og boginn sést í skýjunum
15
mun ég minnast sáttmálans milli mín og ykkar og allra lifandi skepna, alls holds, og aldrei framar skal vatnið verða að flóði sem tortímir öllu lífi.
16
Hverju sinni sem boginn stendur í skýjunum mun ég sjá hann og minnast hins eilífa sáttmála milli Guðs og allra lifandi vera, alls sem lifir á jörðinni.“
17
Og Guð sagði við Nóa: „Þetta er tákn sáttmálans sem ég hef stofnað til milli mín og alls sem lifir á jörðinni.“
18
Synir Nóa, er gengu úr örkinni, voru Sem, Kam og Jafet, en Kam var faðir Kanaans.
19
Þessir voru þrír synir Nóa og frá þeim byggðist öll jörðin.
20
Nói var akuryrkjumaður og fyrstur til að planta víngarð.
21
Drakk hann af víninu og varð drukkinn og lá nakinn í tjaldi sínu.
22
Kam, faðir Kanaans, sá nekt föður síns og sagði báðum bræðrum sínum frá sem úti voru.
23
Þá tóku þeir Sem og Jafet skikkju, lögðu á herðar sér og gengu aftur á bak og huldu nekt föður síns. Þeir sneru sér undan og sáu ekki nekt hans.
24
Nói vaknaði af vímunni og varð þess áskynja hvað yngsti sonur hans hafði gert honum.
25
Hann mælti: Bölvun hvíli á Kanaan. Auvirðilegur þræll bræðra sinna sé hann.
26
Og hann mælti: Lofaður sé Drottinn, Guð Sems. Kanaan sé þræll Sems.
27
Guð gefi Jafet mikið landrými og láti hann búa í tjaldbúðum Sems en Kanaan sé þræll þeirra.
28
Nói lifði þrjú hundruð og fimmtíu ár eftir flóðið.
29
Alls urðu dagar Nóa níu hundruð og fimmtíu ár. Þá andaðist hann.
← Chapter 8
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 10 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50