bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Genesis 49
Genesis 49
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 48
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 50 →
1
Þá lét Jakob kalla á syni sína og mælti: Safnist saman, ég ætla að segja ykkur hvað muni henda ykkur á komandi tímum.
2
Komið saman og hlýðið á, synir Jakobs, hlýðið á Ísrael föður yðar.
3
Rúben, þú ert frumburður minn, kraftur minn og frumgróði styrkleika míns, fremstur að virðingu og fremstur að mætti.
4
Þú ólgar sem vatnið, ekki skaltu fremstur vera því að þú lagðist í hvílu föður þíns, vanhelgaðir sæng mína.
5
Símeon og Leví eru bræður, sverð þeirra eru ofbeldistól.
6
Ég vil ekki blanda geði við þá, ekki taka þátt í samkomum þeirra því að í reiði sinni drápu þeir menn og í ofsa sínum lömuðu þeir nautin.
7
Bölvuð sé reiði þeirra því að hún var römm og bræði þeirra því að hún var grimm. Ég skal dreifa þeim í Jakob og tvístra þeim í Ísrael.
8
Júda, þig munu bræður þínir vegsama. Hönd þín mun vera á hálsi óvina þinna, synir föður þíns skulu lúta þér.
9
Júda er ljónshvolpur, þú hefur snúið heim frá bráðinni, sonur minn. Sem ljón leggst hann niður og hvílist og sem ljónynja, hver þorir að vekja hann?
10
Hvorki mun veldissprotinn víkja frá Júda né stafurinn frá fótum hans. Honum verður sýnd lotning og þjóðirnar ganga honum á hönd.
11
Hann bindur asna sinn við víntré og ösnufola sinn við gæðavínvið. Hann þvær klæði sín í víni og möttul sinn í vínberjablóði.
12
Augu hans eru dekkri en vín og tennur hans hvítari en mjólk.
13
Sebúlon mun búa við sjávarströndina, við ströndina þar sem skipin leggjast að og land hans nær allt til Sídon.
14
Íssakar er sterkur asni sem liggur á milli fjárbyrgjanna.
15
Hann sá að hvíldarstaðurinn var góður og landið unaðslegt, því beygði hann herðar sínar undir byrðar og gerðist ánauðugur þræll.
16
Dan mun rétta hlut þjóðar sinnar sem hver önnur Ísraels ættkvísl.
17
Dan verður höggormur á veginum og naðra í götunni sem hælbítur hestinn svo að kappinn fellur aftur á bak.
18
Ég vænti hjálpar þinnar, Drottinn!
19
Ræningjar ráðast á Gað en hann ræðst á þá og rekur á flótta.
20
Frá Asser kemur ríkuleg fæða og hann veitir konungakrásir.
21
Naftalí er rásandi hind sem fæðir fagra kálfa.
22
Jósef er ungur aldinviður, ungur aldinviður við lind, greinar hans teygja sig upp yfir múrinn.
23
Bogmenn gerðu áhlaup, skutu og sóttu að honum
24
en bogi hans er stöðugur og handleggir hans sterkir. Styrkurinn kemur frá Jakobs Volduga, frá Hirðinum, Hellubjargi Ísraels,
25
frá Guði föður þíns sem hjálpar þér, frá Almáttugum Guði sem blessar þig með blessun af himnum ofan, með blessun djúpsins undir niðri, með blessun brjósta og móðurlífs,
26
með blessun korns og blóma, með blessun aldinna fjalla, með unaði eilífra hæða. Megi hún koma yfir höfuð Jósefs og hvirfil hans, höfðingja bræðra sinna.
27
Benjamín er gráðugur úlfur. Á morgnana etur hann bráð og á kvöldin skiptir hann herfangi.
28
Þetta voru allar tólf ættkvíslir Ísraels og þetta er það sem faðir þeirra sagði við þá. Jakob blessaði þá alla með þeirri blessun sem hverjum þeirra bar.
29
Síðan gaf hann þeim þessi fyrirmæli: „Nú þegar ég safnast til míns fólks skuluð þið jarða mig hjá feðrum mínum, í hellinum í landi Efrons Hetíta,
30
í hellinum sem er í Makpelalandi gegnt Mamre í Kanaanslandi. Abraham keypti þennan helli og akur af Efron Hetíta fyrir grafreit.
31
Þar var Abraham jarðaður og Sara, kona hans, þar var Ísak jarðaður og Rebekka, kona hans, og þar jarðaði ég Leu.
32
Akurinn og hellirinn, sem á honum er, voru keyptir af Hetítum.“
33
Þegar Jakob hafði gefið sonum sínum þessi fyrirmæli lyfti hann fótum sínum upp í hvíluna. Síðan gaf hann upp andann og safnaðist til síns fólks.
← Chapter 48
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 50 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50