bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Genesis 4
Genesis 4
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 5 →
1
Adam kenndi Evu, konu sinnar. Hún varð þunguð og fæddi Kain og mælti: „Ég hef eignast sveinbarn með hjálp Drottins.“
2
Síðar fæddi hún Abel, bróður hans. Abel varð hjarðmaður en Kain akuryrkjumaður.
3
Einhverju sinni færði Kain Drottni fórn af ávexti jarðarinnar.
4
Abel færði einnig fórn af frumburðum hjarðar sinnar og feiti þeirra. Drottinn gaf gaum að Abel og fórn hans
5
en leit ekki við Kain og fórn hans. Þá reiddist Kain mjög og varð þungur á brún.
6
Drottinn sagði við Kain: „Hví reiðist þú og ert þungur á brún?
7
Er ekki svo að þú getur verið upplitsdjarfur ef þú gerir rétt, en gerir þú rangt þá liggur syndin við dyrnar? Hún girnist þig en þú getur sigrast á henni.“
8
Þá sagði Kain við Abel, bróður sinn: „Göngum út á akurinn.“ Og er þeir voru á akrinum réðst Kain á Abel, bróður sinn, og drap hann.
9
Þá sagði Drottinn við Kain: „Hvar er Abel, bróðir þinn?“ Kain svaraði: „Það veit ég ekki. Á ég að gæta bróður míns?“
10
Drottinn sagði: „Hvað hefurðu gert? Blóð Abels, bróður þíns, hrópar til mín af jörðinni.
11
Þess vegna skaltu vera bölvaður og burtrekinn af jörðinni sem opnað hefur munn sinn og tekið á móti blóði bróður þíns er þú úthelltir.
12
Þegar þú yrkir jörðina skal hún ekki framar gefa þér uppskeru sína. Landflótta og flakkandi skaltu vera á jörðinni.“
13
Kain sagði við Drottin: „Sekt mín er meiri en svo að ég fái borið hana.
14
Nú hefur þú rekið mig burt af landinu. Ég verð að fela mig fyrir augliti þínu, landflótta og flakkandi um jörðina. Þá getur hver sem finnur mig drepið mig.“
15
Drottinn sagði við Kain: „Svo skal ekki verða. Hver sem drepur Kain skal sæta sjöfaldri hefnd.“ Og Drottinn setti merki á Kain til þess að enginn sem rækist á hann dræpi hann.
16
Og Kain gekk burt frá augliti Drottins og settist að í landinu Nód, fyrir austan Eden.
17
Kain kenndi konu sinnar og hún varð þunguð og fæddi Enok. Kain byggði borg og nefndi hana í höfuðið á Enok, syni sínum.
18
Enok fæddist Írad. Írad gat Mehújael. Mehújael gat Metúsael. Metúsael gat Lamek.
19
Lamek tók sér tvær konur. Hét önnur Ada en hin Silla.
20
Ada ól Jabal. Hann varð ættfaðir þeirra sem búa í tjöldum og eiga búfé.
21
Júbal hét bróðir Jabals. Hann varð ættfaðir þeirra sem leika á strengjahljóðfæri og flautur.
22
Silla ól einnig son, Túbal-Kain, sem smíðaði hvers kyns verkfæri úr eir og járni. Systir Túbal-Kains hét Naama.
23
Lamek sagði við konur sínar: Ada og Silla, hlýðið á orð mín. Konur Lameks, gefið gaum að ræðu minni. Ég drep mann fyrir hvert sár sem ég hlýt og ungmenni fyrir hverja skeinu.
24
Verði Kains hefnt sjö sinnum þá skal Lameks verða hefnt sjötíu og sjö sinnum.
25
Adam kenndi enn konu sinnar og hún ól son og kallaði hann Set, „því að,“ sagði hún, „nú hefur Guð gefið mér annað afkvæmi í stað Abels sem Kain drap.“
26
Set fæddist sonur og hann nefndi hann Enos. Þá hófu menn að ákalla nafn Drottins.
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 5 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50