bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Genesis 13
Genesis 13
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 14 →
1
Abram fór nú frá Egyptalandi til Suðurlandsins með konu sína og allt sem hann átti og Lot fór með honum.
2
Var Abram stórauðugur að kvikfé, silfri og gulli.
3
Hann flutti sig í áföngum frá Suðurlandinu og allt til Betel, staðarins þar sem tjald hans hafði áður verið, milli Betel og Aí,
4
þar sem hann hafði áður reist altarið. Þar ákallaði Abram nafn Drottins.
5
Lot, sem fór með Abram, átti einnig sauði, naut og tjöld.
6
En landið gat ekki framfleytt þeim báðum, byggju þeir saman, því að eign þeirra var mikil. Gátu þeir því ekki saman verið.
7
Þá reis deila milli hjarðmanna Abrams og hjarðmanna Lots. − Kanverjar og Peresítar bjuggu þá í landinu. −
8
Abram mælti þá við Lot: „Engin misklíð skal vera milli mín og þín og milli minna hjarðmanna og þinna því að við erum frændur.
9
Liggur ekki allt landið opið fyrir þér? Skildu heldur við mig. Farir þú til vinstri fer ég til hægri og ef þú ferð til hægri fer ég til vinstri.“
10
Þá hóf Lot upp augu sín og sá allt Jórdanarsléttlendið, hversu vatnsríkt það var alla leið til Sóar eins og aldingarður Drottins, eins og Egyptaland. Þetta var áður en Drottinn eyddi Sódómu og Gómorru.
11
Kaus Lot sér allt Jórdanarsléttlendið og flutti sig austur eftir og þannig skildu þeir.
12
Abram bjó í Kanaanslandi en Lot bjó í borgunum á sléttlendinu og sló upp tjöldum sínum í grennd við Sódómu.
13
En íbúar Sódómu voru illir og syndguðu mjög gegn Drottni.
14
Er Lot hafði skilið við Abram sagði Drottinn við Abram: „Hef upp augu þín frá þeim stað þar sem þú býrð og horfðu til norðurs, suðurs, austurs og vesturs.
15
Allt landið, sem þú sérð, mun ég gefa þér og niðjum þínum að eilífu.
16
Ég mun gera niðja þína sem duft jarðar. Geti nokkur talið duftkorn jarðar þá má einnig koma tölu á niðja þína.
17
Tak þig upp og far um landið þvert og endilangt því að þér gef ég það.“
18
Og Abram færði sig með tjöld sín og kom til Mamrelundar í Hebron og settist þar að. Og þar reisti hann Drottni altari.
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 14 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50