bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Genesis 35
Genesis 35
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 34
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 36 →
1
Guð sagði við Jakob: „Leggðu af stað og farðu til Betel. Þar skaltu setjast að og reisa altari Guði sem birtist þér þegar þú flýðir undan Esaú, bróður þínum.“
2
Jakob sagði við fjölskyldu sína og alla sem með honum voru: „Losið ykkur við útlendu goðin sem þið hafið í fórum ykkur, hreinsið ykkur og hafið fataskipti.
3
Við skulum leggja af stað og reisa altari þeim Guði sem bænheyrði mig á neyðarstundu og hefur verið með mér á vegferð minni.“
4
Þá létu þeir Jakob fá öll útlendu goðin sem þeir höfðu í fórum sínum og hringana sem þeir höfðu í eyrunum. Jakob gróf það allt undir eikinni við Síkem.
5
Því næst lögðu þeir af stað. En mikill ótti kom yfir íbúa nágrannaborganna svo að enginn þorði að veita sonum Jakobs eftirför.
6
Og Jakob kom ásamt öllu sínu fólki til Lús, sem nú heitir Betel, í Kanaanslandi.
7
Þar reisti hann altari og nefndi staðinn El-Betel því að þar hafði Guð birst honum er hann flýði undan bróður sínum.
8
Þar dó Debóra, fóstra Rebekku, og var jörðuð fyrir sunnan Betel undir eik sem nefnd var Gráteik.
9
Þegar Jakob var á heimleið frá Mesópótamíu birtist Guð honum aftur og blessaði hann.
10
Guð sagði við hann: „Nafn þitt er Jakob en héðan í frá skaltu ekki heita Jakob. Þú skalt heita Ísrael.“ Og hann nefndi hann Ísrael.
11
Guð sagði við hann: „Ég er Almáttugur Guð. Vertu frjósamur og auktu kyn þitt. Þjóð skal frá þér koma, já, fjöldi þjóða og þú munt verða ættfaðir konunga.
12
Ég mun gefa þér landið sem ég gaf Abraham og Ísak og niðjum þínum mun ég einnig gefa það.“
13
Því næst sté Guð upp frá honum þaðan sem hann talaði við hann.
14
Jakob reisti upp merki á þeim stað þar sem Guð hafði talað við hann, merkistein, og dreypti dreypifórn yfir hann og hellti yfir hann olíu.
15
Og Jakob nefndi staðinn, þar sem Guð hafði talað við hann, Betel.
16
Þau héldu nú frá Betel og þegar þau nálguðust Efrata kom að því að Rakel skyldi verða léttari. Varð fæðingin mjög erfið
17
og þegar fæðingarhríðirnar voru sem verstar sagði ljósmóðirin við hana: „Óttast þú ekki því að þú munt eignast annan son.“
18
Er hún var í andarslitrunum, því að fæðingin kostaði hana lífið, nefndi hún hann Benóní en faðir hans nefndi hann Benjamín
19
Þegar Rakel var látin var hún jörðuð við veginn til Efrata, það er Betlehem.
20
Jakob reisti minnismerki á leiði hennar. Það er legsteinn Rakelar sem hefur staðið þar allt til þessa dags.
21
Ísrael hélt áfram og sló tjöldum sínum handan Migdal Eder.
22
Eitt sinn meðan Ísrael hafðist við í þessu byggðarlagi fór Rúben og lagðist með Bílu, hjákonu föður síns, og Ísrael komst að því. Jakob átti tólf syni.
23
Synir Leu voru Rúben, frumgetinn sonur Jakobs, Símeon, Leví, Júda, Íssakar og Sebúlon.
24
Synir Rakelar voru Jósef og Benjamín.
25
Synir Bílu, ambáttar Rakelar, voru Dan og Naftalí.
26
Synir Silpu, ambáttar Leu, voru Gað og Asser. Þetta voru þeir synir sem Jakobi fæddust í Mesópótamíu.
27
Jakob kom til Ísaks, föður síns, í Mamre við Kirjat Arba, það er Hebron, þar sem Abraham og Ísak höfðu búið.
28
Ísak náði hundrað og áttatíu ára aldri.
29
Þá andaðist hann og safnaðist til feðra sinna, gamall og saddur lífdaga. Esaú og Jakob, synir hans, jörðuðu hann.
← Chapter 34
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 36 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50