bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Genesis 7
Genesis 7
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 8 →
1
Drottinn sagði við Nóa: „Gakktu inn í örkina og allt þitt fólk því að í mínum augum ert þú eini réttláti maðurinn af þessari kynslóð.
2
Taktu til þín sjö og sjö, karldýr og kvendýr, af öllum hreinum dýrum en tvö og tvö af þeim sem ekki eru hrein, karldýr og kvendýr,
3
og einnig sjö og sjö, karlkyns og kvenkyns, af fuglum himins til þess að viðhalda lífsstofni á allri jörðinni.
4
Að sjö dögum liðnum mun ég láta rigna á jörðina í fjörutíu daga og fjörutíu nætur og afmá af jörðinni sérhverja lifandi veru sem ég hef skapað.“
5
Og Nói gerði allt eins og Drottinn bauð honum.
6
Nói var sex hundruð ára þegar vatnsflóðið steyptist yfir jörðina.
7
Nú gengu Nói, synir hans, kona hans og tengdadætur með honum inn í örkina undan vatnsflóðinu.
8
Tvennt og tvennt, karlkyns og kvenkyns, af hreinum og óhreinum dýrum, fuglum og öllum skriðdýrum jarðar gekk í örkina til Nóa eins og Guð hafði boðið honum.
10
Og að liðnum sjö dögum steyptist vatnsflóðið yfir jörðina.
11
Á sautjánda degi annars mánaðar á sex hundraðasta aldursári Nóa, þann dag brutust fram allar uppsprettur hins mikla djúps og flóðgáttir himinsins opnuðust.
12
Það rigndi á jörðina í fjörutíu daga og fjörutíu nætur.
13
Einmitt þann dag gengu Nói, Sem, Kam og Jafet, synir Nóa, og kona Nóa ásamt þremur tengdadætrum hans í örkina,
14
þau og öll dýr merkurinnar eftir sínum tegundum, allur búfénaður eftir sínum tegundum og öll skriðdýr jarðar eftir sínum tegundum, allir fuglar eftir sínum tegundum og allt það sem flogið gat og vængi hafði.
15
Þau komu í örkina til Nóa tvö og tvö, öll dýr sem lífsanda drógu.
16
Þau sem inn gengu voru karlkyns og kvenkyns af öllum dýrum eins og Guð hafði boðið Nóa. Og Drottinn lokaði á eftir honum.
17
Flóðið stóð í fjörutíu daga á jörðinni og vötnin jukust og lyftu örkinni svo hún hófst hátt yfir jörðina.
18
Vötnin mögnuðust og jukust stórum á jörðinni en örkin flaut á vatninu.
19
Vötnin uxu enn á jörðinni og huldu öll hin háu fjöll sem eru undir himninum.
20
Vötnin stigu enn um fimmtán álnir og huldu öll fjöll.
21
Þá fórust öll dýr sem hreyfast á jörðinni, fuglar, búfénaður, dýr merkurinnar og allt sem jörðin er kvik af og mannkyn allt.
22
Allt sem lífsanda dró, allt sem var á þurru landi, dó.
23
Allt líf á jörðinni var afmáð, bæði menn og dýr, skriðdýr og fuglar himins. Þau voru máð af jörðinni. En Nói varð einn eftir og þau sem með honum voru í örkinni.
24
Vötnin mögnuðust á jörðinni í hundrað og fimmtíu daga.
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 8 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50