bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Genesis 15
Genesis 15
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 14
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 16 →
1
Eftir þessa atburði kom orð Drottins til Abrams í sýn: „Óttast þú ekki, Abram. Ég er skjöldur þinn. Laun þín munu mjög mikil verða.“
2
Abram svaraði: „Drottinn Guð! Hvað getur þú gefið mér? Ég fer héðan barnlaus og erfingi húss míns verður Elíeser frá Damaskus.“
3
Og enn fremur mælti hann: „Sjá, þú hefur ekki gefið mér neitt afkvæmi og húskarl minn mun erfa mig.“
4
Þá kom orð Drottins aftur til Abrams: „Ekki mun hann erfa þig heldur sá sem af þér mun getinn verða. Hann skal erfa þig.“
5
Þá leiddi hann Abram út fyrir og mælti: „Líttu til himins og teldu stjörnurnar ef þú getur.“ Og hann sagði: „Svo margir munu niðjar þínir verða.“
6
Og Abram trúði Drottni og hann reiknaði honum það til réttlætis.
7
Og Drottinn sagði við hann: „Ég er Drottinn sem leiddi þig út frá Úr í Kaldeu til þess að gefa þér þetta land til eignar.“
8
Abram svaraði: „Drottinn Guð, hvað hef ég til marks um að ég muni eignast það?“
9
Drottinn svaraði honum: „Færðu mér þrevetra kvígu, þrevetra geit og þrevetra hrút, turtildúfu og dúfuunga.“
10
Hann færði honum öll þessi dýr, hlutaði þau sundur í miðju og lagði hvern helminginn gegnt öðrum. En fuglana hlutaði hann ekki í tvennt.
11
Flugu þá hræfuglar að ætinu en Abram fældi þá burt.
12
Er sól var að ganga til viðar leið þungur svefnhöfgi á Abram og ótti og myrk skelfing kom yfir hann.
13
Þá sagði Drottinn: „Það skaltu vita að niðjar þínir munu lifa sem landlausir aðkomumenn í landi sem þeir eiga ekki. Þeir munu þrælkaðir verða og þjáðir í fjögur hundruð ár.
14
En ég mun vissulega kveða upp dóm yfir þjóðinni sem þrælkar þá og síðar munu þeir þaðan fara með mikinn fjárhlut.
15
Og þú munt safnast til feðra þinna í friði og verða jarðaður í hárri elli.
16
Í fjórða ættlið munu þeir snúa hingað aftur því að enn hafa Amorítar ekki fyllt mæli sektar sinnar.“
17
Sólin gekk til viðar og myrkur skall á. Kom þá reykur sem úr ofni og eldslogi er leið fram á milli fórnarstykkjanna.
18
Á þeim degi gerði Drottinn sáttmála við Abram og mælti: „Niðjum þínum gef ég þetta land, frá Egyptalandsá til fljótsins mikla, Efrats,
19
land Keníta, Kenisíta, Kadmoníta,
20
Hetíta, Peresíta, Refaíta,
21
Amoríta, Kanverja, Gírgasíta og Jebúsíta.“
← Chapter 14
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 16 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50