bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Hosea 1
Hosea 1
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 2 →
1
Orð Drottins sem barst Hósea Beerísyni þegar Ússía, Jótam, Akas og Hiskía voru konungar í Júda og Jeróbóam Jóasson var konungur í Ísrael.
2
Drottinn tók nú að tala til Hósea. Drottinn sagði við Hósea: „Farðu og gakktu að eiga hórkonu og eignastu hórbörn því að landið drýgir hór og hverfur frá Drottni.“
3
Þá fór hann og gekk að eiga Gómer Diblaímsdóttur, hún varð þunguð og ól honum son.
4
Drottinn sagði við hann: „Láttu hann heita Jesreel því að eftir skamma hríð dreg ég ætt Jehú til ábyrgðar fyrir blóðbaðið í Jesreel og bind enda á konungdæmi Ísraelsmanna.
5
Á þeim degi brýt ég boga Ísraels á Jesreelsléttu.“
6
Hún varð aftur þunguð og ól dóttur. Drottinn sagði við Hósea: „Gefðu henni nafnið Miskunnarvana því að ég mun hvorki miskunna Ísraelshúsi framar né fyrirgefa því.
7
En ég mun miskunna Júdahúsi vegna Drottins, Guðs þess, en ég mun ekki hjálpa því með boga, sverði eða bardaga, hestum eða riddurum, heldur vegna Drottins, Guðs þess.“
8
Þegar Gómer hafði hætt að gefa Miskunnarvana brjóst varð hún aftur þunguð og ól son.
9
Drottinn sagði: „Láttu hann heita Ekki-lýður-minn því að þér eruð ekki lýður minn og ég verð ekki með yður.“
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 2 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
Recommended Reading
Commentary
Hosea Commentaries
→
Devotional
Hosea Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→