bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Hosea 9
Hosea 9
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 8
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 10 →
1
Gleðstu ekki, Ísrael, fagnaðu ekki eins og aðrar þjóðir því að þú hóraðist, yfirgafst Guð þinn. Þú girntist skækjulaun á hverjum þreskivelli.
2
Þreskivöllur og vínpressa skulu ekki fæða þá og vínuppskeran bregst þeim.
3
Þeir fá ekki að búa í landi Drottins, Efraím mun hverfa aftur til Egyptalands og neyta óhreinnar fæðu í Assýríu.
4
Ekki færa þeir Drottni vín að dreypifórn og sláturfórnir þeirra gleðja hann ekki. Brauðið verður þeim sem sorgarbrauð, hver sem þess neytir verður óhreinn. Brauðið seður aðeins hungur þeirra en kemur ekki í hús Drottins.
5
Hvað ætlið þér að gera á löghelgum, á hátíðardögum Drottins?
6
Þótt þeir sleppi frá eyðingunni safnar Egyptaland þeim saman, Memfis grefur þá, hversu verðmætt sem silfur þeirra er vex illgresi yfir það, í tjöldum þeirra vaxa þyrnar.
7
Dagar uppgjörsins eru komnir, dagar endurgjaldsins eru komnir, Ísrael mun sjá það. „Spámaðurinn er kjáni, andans maður ruglaður.“ Af því að misgjörð þín er mikil verður fjandskapurinn mikill.
8
Spámaðurinn er vörður Efraíms með Guði mínum, þeir leggja fyrir hann gildrur hvert sem hann fer, hann verður fyrir fjandskap í húsi Guðs síns.
9
Þeir hafa grafið honum djúpa gröf eins og á dögum Gíbeu. Drottinn minnist sektar þeirra, vitjar synda þeirra.
10
Ég fann Ísrael eins og vínber í eyðimörkinni, sem snemmsprottinn ávöxt á fíkjutré sá ég feður yðar. Þeir komu til Baals Peórs, helguðu sig hinum svívirðilega og urðu viðurstyggilegir eins og sá sem þeir elskuðu.
11
Efraím líkist fugli, sæmd hans flögrar burt, fæðingar, þungun og getnaður verða úr sögunni.
12
Þótt þeir ali upp börn sín geri ég þá barnlausa og enginn maður verður eftir. Vei þeim þegar ég sný frá þeim.
13
Ég sá Efraím sem pálmalund á engi. Nú verður Efraím að senda börn sín til slátrara.
14
Gefðu þeim, Drottinn. Hvað áttu að gefa þeim? Gefðu þeim móðurlíf óbyrju og uppþornuð brjóst.
15
Öll illska þeirra birtist í Gilgal, þar fékk ég hatur á þeim. Vegna illskuverka þeirra mun ég reka þá úr húsi mínu. Ég mun ekki elska þá framar, allir höfðingjar þeirra eru uppreisnarmenn.
16
Efraím var felldur, rót hans er skrælnuð, hann ber engan ávöxt. Ef þeir eignast afkvæmi mun ég deyða elskuð börn þeirra.
17
Guð minn mun hafna þeim því að þeir hafa ekki hlýtt á hann og þeir munu ráfa um meðal framandi þjóða.
← Chapter 8
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 10 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14