bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Hosea 11
Hosea 11
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 12 →
1
Þegar Ísrael var ungur fékk ég ást á honum og kallaði son minn frá Egyptalandi.
2
Þegar ég kallaði á þá hlupu þeir frá augliti mínu, færðu Baölum sláturfórnir og skurðgoðum reykelsi.
3
Ég kenndi Efraím að ganga, bar þá á örmum mér en þeir skildu ekki að það var ég sem annaðist þá.
4
Ég dró þá að mér með böndum eins og menn nota, með taugum kærleikans. Ég reyndist þeim eins og sá sem lyftir brjóstmylkingi að vanga sér. Ég beygði mig niður að honum, gaf honum að eta.
5
Hann vill hverfa aftur til Egyptalands, Assúr verður konungur hans. Þar sem hann neitaði að hverfa aftur
6
mun sverðið geisa í borgum þeirra og tortíma spáprestum þeirra, eyða þeim vegna ráðabruggs þeirra.
7
En þjóð mín er ráðin í að yfirgefa mig og þeir hrópa til Baals en hann reisir þá ekki upp.
8
Hvernig gæti ég framselt þig, Efraím, ofurselt þig, Ísrael, hvernig gæti ég framselt þig eins og Adma, farið með þig eins og Sebóím? Hjartað umhverfist í brjósti mér, ég finn fyrir brennheitri samúð.
9
Ég ætla ekki að láta glóandi reiði mína ráða, ekki eyða Efraím aftur. Þar sem ég er Guð og ekki maður, heilagur mitt á meðal yðar, kem ég ekki til yðar í bræði.
10
Þeir munu fylgja Drottni, hann mun öskra sem ljón, já, hann mun öskra svo að synirnir komi skjálfandi úr vestri.
11
Þeir koma skjálfandi eins og fuglar frá Egyptalandi, eins og dúfur frá Assýríu. Þá mun ég láta þá búa í eigin húsum, segir Drottinn.
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 12 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14