bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Hosea 10
Hosea 10
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 11 →
1
Ísrael er blómlegur vínviður sem ber ávöxt. Þegar ávöxtum hans fjölgaði fjölgaði hann ölturum sínum. Þegar velmegun jókst í landinu gerði hann merkisteina sína fegurri.
2
Hjarta þeirra er svikult, nú eru þeir sekir. Hann mun sjálfur brjóta ölturu þeirra, eyða merkisteinum þeirra.
3
Nú munu þeir segja: „Vér höfum engan konung því að vér óttumst ekki Drottin. Hvað getur konungurinn gert fyrir oss?
4
Talað fánýt orð, svarið meinsæri, gert sáttmála.“ Og rétturinn blómstrar eins og eitruð jurt í plógfari á akri.
5
Íbúar Samaríu óttast um kálfinn í Betaven. Þjóð hans syrgir hann, prestar hans gráta dýrð hans því að hann verður gerður útlægur frá þeim.
6
Hann verður fluttur til Assýríu sem gjöf til stórkonungs. Efraím uppsker smán, Ísrael verður sér til skammar vegna ráða sinna.
7
Samaría verður eydd, konungur hennar verður sem afskorinn kvistur í vatni.
8
Fórnarhæðir illskunnar, synd Ísraels, verða eyddar, þyrnar og þistlar munu vaxa yfir ölturu þeirra. Menn munu segja við fjöllin: „Hyljið oss,“ og við hæðirnar: „Hrynjið yfir oss.“
9
Allt frá dögum Gíbeu hefur þú syndgað, Ísrael, þar hafa þeir staðið í sömu sporum. Mun stríð ekki ná til þeirra í Gíbeu vegna illskuverkanna?
10
Ég er kominn til að aga þá. Þjóðir munu safnast saman gegn þeim þegar þeir sæta aga fyrir báðar syndir sínar.
11
Efraím var tamin kvíga, viljug að þreskja. Þegar ég gekk hjá og sá sterklegan háls hennar spennti ég Efraím fyrir til að plægja, Jakob á að herfa.
12
Sáið réttlæti og uppskerið kærleika, brjótið land til ræktunar. Nú er tími til að leita svara hjá Drottni þar til hann kemur og lætur réttlæti rigna yfir yður.
13
En þér hafið gróðursett ranglæti, uppskorið glæpi, þér hafið etið ávöxt lyginnar. Þú treystir þínum eigin leiðum og fjölda hermanna þinna.
14
Þess vegna rís hergnýr gegn þjóð þinni og allar virkisborgir þínar verða eyddar eins og Salman eyddi Betarbel á degi orrustunnar þegar móðir var kramin ásamt börnum sínum.
15
Þannig mun ég fara með yður, Ísraelsmenn, vegna mikillar vonsku yðar. Í dögun þagnar konungur Ísraels.
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 11 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14