bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Hosea 14
Hosea 14
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 13
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
1
Samaría er sek því að hún reis gegn Guði sínum. Íbúar hennar munu falla fyrir sverði, brjóstmylkingum verður slegið við og þungaðar konur ristar á kvið.
2
Snú þú aftur, Ísrael, til Drottins, Guðs þíns, því að misgjörð þín varð þér að falli.
3
Takið orð með yður og hverfið aftur til Drottins. Segið við hann: „Þú fyrirgefur hverja sekt, taktu við orðum vorum, vér færum fram varir vorar í stað nauta.
4
Assýría bjargar oss ekki, vér ríðum ekki oftar á stríðsfákum og segjum ekki framar: „Guð vor“ við eigin handaverk því að munaðarleysinginn hlýtur miskunn hjá þér.“
5
Ég ætla að lækna tryggðarof þeirra og elska þá af frjálsum og fúsum vilja. Reiði mín er snúin frá þeim.
6
Ég verð Ísrael sem dögg, hann mun blómgast eins og lilja, skjóta rótum eins og trén í Líbanon.
7
Greinar hans munu breiða úr sér og krónan verður eins og á ólífutré, og hann mun ilma eins og skógurinn í Líbanon.
8
Þeir sem búa í skugga Drottins munu rækta korn og blómgast sem vínviður.
9
Hvaða gagn hefur Efraím af skurðgoðum? Ég mun bænheyra hann og annast hann. Ég er sem gróskumikill einirunni, hjá mér muntu finna nægan ávöxt.
10
Hver er svo vitur að hann skilji þetta, svo glöggur að hann játi það? Vegir Drottins eru beinir, réttlátir fara þá en syndarar hrasa á þeim.
← Chapter 13
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14