bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Hosea 4
Hosea 4
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 5 →
1
Hlýðið á orð Drottins, Ísraelsmenn, því að Drottinn ákærir íbúa landsins þar sem í landinu er engin trúfesti, kærleikur né þekking á Guði.
2
Meinsæri, svik, morð, þjófnaður og hórdómur breiðist út og blóðbað fylgir blóðbaði.
3
Þess vegna skrælnar landið og allir íbúar þess visna ásamt dýrum merkurinnar og fuglum himinsins, meira að segja fiskum hafsins verður svipt burt.
4
Nei, enginn skal ákæra og enginn áminna, heldur mun ég sjálfur ákæra þig, prestur,
5
og þú munt hrasa um hábjartan dag og spámaður með þér um nætur og móðir þín mun deyja,
6
þjóð mín mun farast því að hún hefur enga þekkingu. Þar sem þú hefur hafnað þekkingunni hafna ég þér sem presti fyrir mig. Þú hefur gleymt kenningu Guðs þíns og þess vegna gleymi ég sonum þínum.
7
Því fleiri sem þeir urðu, því meira syndguðu þeir gegn mér. Þeir skiptu á sæmd sinni og smán.
8
Þeir lifa á synd þjóðar minnar og eru sólgnir í afbrot hennar.
9
En prestinum skal farnast eins og þjóðinni og ég mun draga hann til ábyrgðar fyrir breytni sína og endurgjalda honum verk hans.
10
Þeir munu nærast en ekki verða saddir, þeir munu hórast en þeim mun ekki fjölga því að þeir hættu að gefa Drottni gaum til að drýgja hór.
11
Hórdómur og víndrykkja sviptir þjóð mína viti,
12
hún leitar ráða hjá trjádrumbum sínum og stafur hennar á að gefa henni fyrirmæli. Já, hórdómsandinn hefur leitt þá afvega, hórdómur þeirra fjarlægir þá Guði sínum.
13
Þeir færa sláturfórnir á fjallatindum og brenna reykelsi á hæðum, undir eikum, öspum og terebintum því að skuggi þeirra er notalegur. Þess vegna hórast dætur yðar og tengdadætur yðar halda fram hjá.
14
Ég mun hvorki gera dætur yðar ábyrgar vegna þess að þær hórast né tengdadætur yðar fyrir að halda fram hjá því að þeir ganga sjálfir afsíðis með hórum og halda fórnarveislur með musterisskækjum. Þjóð, sem ekkert skilur, mun líða undir lok.
15
Ef þú hórast, Ísrael, skal Júda ekki verða sek. Farið því ekki til Gilgal og farið ekki til Betaven og sverjið ekki: „Svo sannarlega, sem Drottinn lifir.“
16
Já, Ísrael er þrjóskur eins og þrjósk kýr. Á Drottinn þá að halda Ísraelsmönnum á beit eins og lömbum í haga?
17
Efraím er bundinn á klafa skurðgoða. Látið hann afskiptalausan.
18
Þegar drykkjusvalli þeirra lýkur hórast þeir, meta skömm meira en sæmd sína.
19
Stormur sviptir þeim burt með vængjum sínum og þeir hljóta smán fyrir ölturu sín.
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 5 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14